Þarf að byggja meira?
Borgartún 21
12:00-12:45
Upplýsingar
Borgartún 21
12:00-12:45
13
des.
Kynningarfundur vegna birtingar nýrra upplýsinga úr mannvirkjaskrá um fjölda íbúða í byggingu hverju sinni í rauntíma.
Á gagnvirku Íslandskorti á vef HMS verður nú hægt að skoða allar íbúðir í byggingu sem og öll byggingaráform í rauntíma. Þannig geta sveitarfélög, verktakar, lánastofnanir, söluaðilar byggingarvara, fasteignasalar og fleiri hagaðilar nú loksins byggt áætlanir sínar á staðreyndum. Upplýsingarnar eru teknar upp úr mannvirkjaskránni og uppfærast samhliða skráningum í rauntíma.
Á fundinum verður einnig fjallað um íbúðaþarfagreiningu HMS í ljósi nýjustu mannfjöldatalningar Hagstofunnar sem vakið hefur nokkra athygli og umræður.
Fundurinn verður einnig sendur út í streymi. Boðið verður upp á léttar veitingar. Við vonum að þú sjáir þér fært að mæta. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á fundinum.
Hér má nálgast glærur og upptöku af viðburðinum
- Birting rauntímaupplýsinga um fjölda íbúða í byggingu samkvæmt mannvirkjaskrá - Glærur (Hefst 02:50)
Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri mannvirkja og sjálfbærni, HMS - Íbúðaþörf: Helstu drifkraftar og óvissa - Glærur (Hefst 19:50)
Þorsteinn Arnalds, tölfræðingur, HMS - Grundvöllur aukins stöðugleika á húsnæðismarkaði - Glærur (Hefst 32:40)
Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur, SI