Nýsköpun í mannvirkjagerð

location-svg

Reykjavík

09:00-11:30

Upplýsingar

location-svg

Reykjavík

09:00-11:30

28 - 21

maí

Framkvæmdir til framtíðar – Opinn streymisviðburður í Grósku í Nýsköpunarviku

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samtök iðnaðarins, Byggingavettvangurinn og Verkís bjóða til opinnar málstofu í samstarfi við Nýsköpunarvikuna, þar sem nýtt skipulag á rannsóknar- og nýsköpunarumhverfi byggingariðnaðarins verður kynnt auk þess sem fulltrúar úr allri virðiskeðju mannvirkjagerðar segja reynslusögur um nýsköpun innan byggingariðnaðarins: Hvaða nýsköpun er þar að finna? Hvað hefur gengið vel? Hvað má betur fara?

Nýsköpun á sér stað á öllum stigum mannvirkjageirans, hvort sem það er við þróun byggingarefna, hönnun mannvirkja, fjármögnun þeirra, framkvæmdir eða rekstur, á stjórnsýslustigi eða við rannsóknir og nám. Gerð verður tilraun til að hrekja hina lífseigu mýtu um að byggingargeirinn sé íhaldssamasti bransinn á Íslandi.

Viðburðurinn fer fram föstudaginn 28. maí 2021, kl. 9:00-11:30.

Á dagskránni er fjöldi spennandi kynninga og örerinda frá fulltrúum helstu hagaðila virðiskeðjunnar:

  • Nýsköpun í byggingariðnaði: Myndband frá Byggingarvettvangi.
  • Kynning: Nýtt skipulag á rannsóknar- og nýsköpunarumhverfi byggingariðnaðarins.
  • Wassim Mansour, framkvæmdastjóri gæða- og sölumála hjá Steypustöðinni: Smart testing and artificial intelligence in concrete construction.
  • Sigurður Guðjónsson, forstöðumaður byggingardeildar hjá Límtré Vírnet: Íslenskt timbur í framleiðslu á límtrésbitum.
  • Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri JÁVERK: Nýsköpun í byggingariðnaði með áherslu á umhverfismál.
  • Davíð Friðgeirsson, BIM ráðgjafi hjá Verkís: Tæknibylting í hönnun mannvirkja.
  • Helga Guðrún Vilmundardóttir, arkitekt hjá Stáss arkitektum: Nýsköpun–nýhugsun–endurhugsun–umhugsun.
  • Friðjón Sigurðsson, framkvæmdastjóri Þróunarsviðs hjá Reitum: Nýsköpun í uppbyggingu atvinnusvæðis.
  • Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins: Fjórir nýsköpunarvísar í framkvæmdum FSR.
  • Þormóður Sveinsson, skipulagsfulltrúi Hafnarfjarðar: Önnur nálgun í skipulagsmálum.
  • Hera Grímsdóttir, forseti iðn- og tæknifræðideildar Háskólans í Reykjavík: Mikilvægt samtal atvinnulífs og háskóla um þróun í nýsköpun og menntamálum.
  • Gunnar Bjarni Viðarsson, vörustjóri íbúðalána hjá Arion banka: Græn fjármögnun á fasteignamarkaði.

Fundarstjóri er Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins.

Viðburðurinn verður haldinn í stóra fyrirlestrasalnum í Grósku hugmyndahúsi, Bjargargötu 1, Vatnsmýrinni. Vegna fjöldatakmarkanna getum við tekið á móti um 40 skráðum þátttakendum.

Einnig verður hægt að horfa á streymi frá viðburðinum hér á Facebook-síðu hans („Nýsköpunarvikan: Nýsköpun í mannvirkjagerð – framkvæmdir til framtíðar“).

 

Skráning á viðburðinn fer fram hér.

Viðburðurinn er hluti af Nýsköpunarvikunni, nýrri hátíð í Reykjavík sem fer fram dagana 26. maí -2. júní 2021. Frumkvöðlum og fyrirtækjum gefst tækifæri á að kynna þá skapandi starfsemi sem á sér stað á degi hverjum, opna dyrnar fyrir gestum og gangandi og vekja athygli á þeim framúrstefnulegu lausnum sem hafa sprottið upp úr íslensku hugviti. Nánar á www.nyskopunarvikan.is.