Nýsköpun í mannvirkjagerð
Í húsnæði HMS Borgartúni 21, Reykjavík.
09:00-12:30
Upplýsingar
Í húsnæði HMS Borgartúni 21, Reykjavík.
09:00-12:30
25
maí
Fundur um nýsköpun í mannvirkjaiðnaði. Fyrri hluti fundarins er með áherslu á nýsköpun í byggingarefnum hjá styrkhöfum Asks - mannvirkjarannsóknasjóðs og seinni hluti er í samstarfi við VERKÍS með áherslu á umhverfisvænar lausnir á heilsutengdum húsnæðisvanda.
Fundurinn er hluti af dagskrá nýsköpunarvikunnar - innovationweek.is
Streymi frá fundinum
Dagskrá fundarins er hér að neðan.
Skrá mig á nýsköpun í mannvirkjagerð
Hér getur þú skráð þig á fund um nýsköpun í mannvirkjagerð þar sem fjallað verður um nýsköpun í byggingarefnum og umhverfisvænar lausnir á heilsutengdum húsnæðisvanda.
Dagskrá fundarins
Askur – mannvirkjarannsóknasjóður - nýsköpun í byggingarefnum
Val á umhverfisvænum byggingarefnum skiptir sköpum í baráttunni við loftslagsáhrif byggingariðnaðarins og leggja styrkhafar í Aski - mannvirkjarannsóknasjóði mikið af mörkum með rannsóknum og nýsköpun þar að lútandi.
09:00 Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, frkv.stj. mannvirkja og sjálfbærni HMS
09:05 Anna Kristín Karlsdóttir, arkitekt Biobuilding
Fyrsta hampsteypuhúsið á Íslandi og framtíð iðnaðarhamps í mannvirkjagerð.
09:25 Ólafur Wallevik, prófessor í Iðn og tæknifræðideild Háskólans í Reykavík
Hámörkun steinefna sem íblöndunraefni í vistvænni steypu.
09:45 Eyþór Rafn Þórhallsson, dósent í Iðn og tæknifræðideild Háskólans í Reykavík
Bláþráður – Umhverfisvæn styrking í steinsteypu
10.05 Jón Guðmundsson, verkfræðingur hjá Verkfræðiþjónustunni ehf. / f.h. rannsóknarverkefnis við Háskólann í Reykavík
Umhverfisrannsókn á krosslímdum timbureiningum
10:25 HLÉ
Umhverfisvænar lausnir á heilsutengdum húsnæðisvanda
Mygla í húsum hefur verið útbreytt vandamál með stórfelldu eigna og heilsutjóni og hollusta húsnæðis hefur ennfremur risastóra græna skírskotun, því niðurrif bygginga og stórtækar endurbætur sem slík vandamál skapa, gera slík hús ein þau óumhverfisvænastu sem hægt er að byggja. Varpað verður ljósi á áskoranir og lausnir á þessum vanda.
10:40 Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Veðurvaktinni
11:00 Ágúst Pálsson, B.Sc. í vélaverkfræði / lagnahönnuður hjá Verkís
Hrollkaldur sannleikur úr íslenskum veruleika (Kuldabrýr og loftræsing í eldra húsnæði)
11:15 Þórunn Lilja Vilbergsdóttir, lögfræðingur hjá HMS og Ágúst Pálsson
11.25 Ragnar Ómarsson byggingafræðingur og Indriði Níelsson byggingaverkfræðingur hjá Verkís
11:45 Páll Árnason, verkfræðingur hjá Tæknisetri
Þjónusta Tækniseturs og áskoranir opinberra byggingarannsókna
12:10 Létt hádegishressing og samtal
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar