Kynning á fasteignamati 2027

location-svg

Borgartún 21

11:00

Upplýsingar

location-svg

Borgartún 21

11:00

2

júní

HMS mun kynna helstu niðurstöður úr fyrirhuguðu fasteignamati fyrir árið 2027 á opnum fundi í Borgartúni 21 þriðjudaginn 2. júní klukkan 11:00.

HMS endurmetur lögum samkvæmt skráð matsverð allra fasteigna á Íslandi árlega og kynnir niðurstöðurnar fyrir öllum sveitarfélögum og eigendum fasteigna. Fyrirhugað fasteignamat mun taka gildi þann 31. desember á þessu ári og verður það notað til að reikna út fasteignagjöld fyrir árið 2027. Fasteignamat fyrir árið 2027 verður birt í kjölfarið á fasteignaleit HMS

Dag­­­skrá 

Opnun fundar
Jónas Atli Gunnarsson, fundarstjóri 

Ávarp ráðherra
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra

Kynning fasteignamats 2027
Hugrún Ýr Sigurðardóttir, teymisstjóri fasteigna hjá HMS

Brunabótamat í samhengi fasteignamats og fasteignaviðskipta
Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteignasviðs hjá HMS 

Fasteignamat: mikilvægt tæki fyrir fjármálastofnanir
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka

Fasteignamat sem akkeri markaðarins
Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala