Gott aðgengi í ferðaþjónustu – Málstofa
Grand Hótel Reykjavík
15:00-16:30
Upplýsingar
Grand Hótel Reykjavík
15:00-16:30
27
okt.
Milljónir manna um víða veröld hafa áhuga á því að ferðast og hafa bæði tíma og fjármuni til að gera það en halda sig heima vegna þess að aðgengi fyrir fatlaða og hreyfihamlaða er ábótavant.
Í ferðaþjónustu á Íslandi hefur lengi verið kallað eftir því að aðgengi fyrir fatlaða og hreyfihamlaða verði bætt. Undanfarið hefur því verið unnið að sérstöku fræðslu- og hvatningarverkefni um aðgengismál fyrir ferðaþjónustuaðila. Verkefnið er samstarfsverkefni Ferðamálastofu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, ÖBÍ réttindasamtaka og Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra.
Málstofa 27. október
Þessir aðilar boða nú til málstofu um gott aðgengi í ferðaþjónustu og til að kynna verkefnið. Málstofan verður haldin á Grand hótel Reykjavík þann 27. október kl. 15-16:30. Til að mæta á staðinn þarf fólk að skrá sig en málstofan verður einnig send út í beinu streymi á Facebook-síðu viðburðarins.
Málstofan verður ekki táknmálstúlkuð en verður rittúlkuð ef þess er sérstaklega óskað. Upptaka verður aðgengileg með textun á íslensku eftir viðburðinn.
Dagskrá:
- 15:00 Vitundarvakning fyrir ferðaþjónustuna - myndband
- 15:10 Ávarp
Sigurður Ingi Jóhannsson - innviðaráðherra - 15:15 Gott aðgengi í ferðaþjónustu - Tækifæri til tekjuauka
Jóhann Viðar Ívarsson - greinandi hjá Ferðamálastofu - 15:25 Gott aðgengi, kynning á nýju fræðslu- og hvatningarverkefni
Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir – formaður Sjálfsbjargar
Harpa Cilia Ingólfsdóttir – sérfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Áslaug Briem – verkefnastjóri hjá Ferðamálastofu - 15:40 Kynning á Travable og Römpum upp Ísland
Ósk Sigurðardóttir – framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðra - 15:50 Fræðsla til framlínustarfsfólks - myndband
- 16:00 Lokaorð
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Fundarstjóri: Elías Bj. Gíslason – forstöðumaður hjá Ferðamálastofu