Atvinnuuppbygging og þróun íbúðamarkaðar á Vestfjörðum
Edinborgarhúsið á Ísafirði
12:15-13:45
Upplýsingar
Edinborgarhúsið á Ísafirði
12:15-13:45
16
nóv.
Fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðamarkaðar á vestfjörðum
Miðvikudaginn 15. nóvember verður haldinn opinn fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðarmarkaðar í landsbyggðunum. Fundurinn verður haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði kl. 12:15 og er opinn öllum. Að fundinum standa ýmsir aðilar sem láta sig varða uppbyggingu í landsbyggðunum eða Vestfjarðarstofa, Byggðastofnun, HMS, Lóa nýsköpunarstyrkir og Samtök iðnaðarins.
Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða bæði hvað varðar rekstur og íbúðaruppbyggingu.
Dagskrá
Áskoranir og tækifæri á Vestfjörðum
Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, framkvæmdarstjóri Vestfjarðarstofu
Staða íbúðauppbyggingar
Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá HMS
Stafræn byggingarleyfi
Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri hjá HMS
Lánastarfsemi Byggðastofnunar
Guðbjörg Óskarsdóttir, sérfræðingur á fyrirtækjasviði Byggðastofnunar
Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina
Sigurður Steingrímsson, sérfræðingur hjá HVIN
Aukum hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu
Friðrik Ágúst Ólafsson, viðskiptastjóri hjá SI
Húsið opnar kl. 12:00 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn. Fundarstjóri er Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur.