Atvinnuuppbygging og þróun íbúðamarkaðar á Vesturlandi

location-svg

Landnámssetrinu í Borgarnesi

11:30 - 13:00

Upplýsingar

location-svg

Landnámssetrinu í Borgarnesi

11:30 - 13:00

14

nóv.

Þriðjudaginn 14. nóvember verður haldinn opinn fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðarmarkaðar í landsbyggðunum. Fundurinn verður haldinn í Landnámssetrinu í Borgarnesi kl. 11:30 og er opinn öllum. Að fundinum standa ýmsir aðilar sem láta sig varða uppbyggingu í landsbyggðunum eða SSV, Byggðastofnun, HMS, Lóa nýsköpunarstyrkir og Samtök iðnaðarins.

Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða bæði hvað varðar rekstur og íbúðaruppbyggingu.

Dagskrá

Tækifæri og áskoranir á Vesturlandi

Páll Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV

Staða íbúðauppbyggingar

Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá HMS

Stafræn byggingarleyfi

Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri hjá HMS

Lánastarfsemi Byggðastofnunar

Hrund Pétursdóttir, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar

Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina

Lóa Auðunsdóttir, sérfræðingur hjá HVIN

Aukum hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu

Elísa Arnarsóttir, viðskiptastjóri hjá SI

 

Húsið opnar kl. 11:15 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn. Fundarstjóri er Guðveig Lind Eyglóardóttir, formaður stjórnar SSV.

Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur.