Álagsstýring

Mesta notkun rafmagns í íbúðarbyggingum er þegar íbúar koma heim eftir vinnu og fram eftir kvöldi, með topp í kringum matmálstíma:

Mynd 1:  Dæmigerð álagskúrfa notkunar. Mest álag á milli kl. 16 og 22.

Ef hleðslu á rafbíl er bætt við þegar komið er heim úr vinnu eftir kl. 16 eykst hámarksálagið:

Mynd 2:  Álagskúrfa almennrar notkunar (blá) að viðbættu álagi vegna hleðslu rafbíls (græn). 

Ef allir rafbílar væru hlaðnir með hámarksafli á sama tíma væri þörf á miklu hámarksafli í byggingunni. Ekki er þó þörf á öllu þessu afli því misjafnt er hvenær fólk hleður og hver hleðsluþörf bíla er:

Hægt er að mæla álagið við almenna notkun til að finna út hversu mikið afl er til ráðstöfunar á hverjum tíma. Löggiltir rafverktakar framkvæma svona mælingar.

Í sérbýlum, þar sem venjulega er ekki um að ræða fjölda rafbíla á hverju heimili, er auðvelt að stýra notkun eftir tíma sólarhringsins.