Öryggisstjórnun rafverktaka

Löggiltum rafverktaka ber að koma sér upp skilgreindu öryggisstjórnunarkerfi samanber VLR 3.010 Öryggisstjórnun rafverktaka, þannig að tryggt sé að öll hans starfsemi sé samkvæmt reglum. Rafverktaki fylgi reglugerð um raforkuvirki, fyrirmælum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og öðrum gildandi lögum og reglum, eftir því sem við á, í störfum sínum.

Tilkynningar á rafrænu formi

Löggiltum rafverktökum býðst nú að skila skýrslu um neysluveitu á rafrænan hátt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Rafverktaki þarf fyrst að skrá sig í miðlægri rafmagnsöryggisgátt áður en hann getur hafið sendingu. Í gáttinni varðveitast afrit af öllum skýrslum og þangað sendir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun einnig svör við tilkynningum.

Rafverktaki þarf að vera skráður inn á miðlægu rafmangsöryggisgáttina á eigin kennitölu, ekki kennitölu fyrirtækis.

Fara í miðlæga rafmagnsöryggisgátt.

Eft­ir­lit með nýj­um neyslu­veit­um

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur yfireftirlit með því að neysluveitur brjóti ekki í bága við ákvæði laga og reglugerða.