Lífsferilsgreining (LCA)

Hér má finna upplýsingasíðu HMS um lífsferilsgreiningar (skammstafað LCA). Markmið síðunnar er að auðvelda aðgengi að upplýsingum um lífsferilsgreiningar mannvirkja.​

Leiðbeiningarnar veita ráðgjöfum og öðru áhugafólki um byggingariðnaðinn upplýsingar og gagnlega grunnþekkingu á lífsferilsgreiningum (e. life cycle assessment, LCA einnig kallað vistferilsgreiningar) fyrir byggingar. Leiðbeiningarnar gagnast byggingariðnaðinum í að framkvæma lífsferilsgreiningar. Þannig er stuðlað að markmiðum sem að stjórnvöld hafa sett sér um samdrátt í losun, í samræmi við aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum, sem og aðrar nýjar sjálfbærnikröfur sem stefnt  er að því að innleiða í byggingarreglugerð. Litið var til fyrirmynda á norðurlöndunum við gerð þessara leiðbeininga sem eru einnig að innleiða LCA kröfur og sjálfbærnikröfur í sínum byggingarreglugerðum.

Hvað er lífsferilsgreining (LCA)?

Lífsferilsgreining (eða vistferilsgreining, e. life cycle assessment, LCA) er stöðluð aðferðafræði sem notuð er til að meta heildstæð umhverfisáhrif vöru eða þjónustu (staðbundin og hnattræn) yfir allan líftímann, með öðrum orðum frá vöggu til grafar. Með henni eru kortlögð umhverfisáhrif vegna öflunar hráefna, flutninga, framleiðslu, notkunar og úrgangsmeðhöndlunar fyrir viðkomandi vöru eða þjónustu.

Nánar

Hafa samband

Hér er hægt að senda inn ábendingar um efni síðunnar.   

Ábendingar sendist á