Byggingar- og framkvæmdaleyfi á varnar- og öryggissvæðum

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veitir byggingarleyfi samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um mannvirki, vegna framkvæmda við eftirtalin mannvirki: 

  • Mannvirki á hafi utan sveitarfélagamarka. Sé mannvirki á hafi eigi fjær ytri mörkum netlaga en eina sjómílu skal leita umsagnar næsta sveitarfélags, eins eða fleiri eftir atvikum, við umfjöllun um byggingarleyfisumsókn.
  • Mannvirki á varnar- og öryggissvæðum, sbr. 62. gr.

Allar Framkvæmda- og byggingarleyfisumsóknir fara nú fram í gegnum Þjónustugátt HMS með rafrænum skilríkjum.

Umsækjandi skráir sig inn með rafrænum skilríkjum og skilar gögnum í gegnum þjónustugáttina.

Byggingarstjórar og iðnmeistarar skrá sig jafnframt rafrænt og skila áfangaúttektum til byggingarfulltrúa með OneApp.

Þjónustugátt byggingarfulltrúa HMS

Hér er hægt að nálgast þjónustugátt byggingarfulltrúa HMS.

Þjónustugátt byggingarfulltrúa HMS

Hér er hægt að nálgast þjónustugátt byggingarfulltrúa HMS.