CE-merktar byggingarvörur

Þegar til er samhæfður staðall fyrir byggingarvöru er gerð krafa um að CE-merkja vöruna áður en hún er sett á markað. Þá eru mikilvægir eiginleikar vörunnar metnir og settir fram á samræmdan hátt í yfirlýsingu um nothæfi

Um markaðssetningu CE-merktra byggingarvara gildir Evrópureglugerð nr. 305/2011 og II. kafli laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Leiðbeiningarnar hér að neðan snúa að því regluverki.

Ef ekki fylgir yfirlýsing um nothæfi er byggingarvaran ólögleg á markaði.