Um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Græn skref HMS
Græn skref HMS
Árið 2024 losaði HMS 53,08 tonn af CO2ig vegna samgangna, orkunýtingar og úrgangs. Losunin nam 335 kg af CO2íg á hvern starfsmann.
Það er 8,45% minna en árið 2019 þegar að mælingar hófust en þó nokkuð meira en árin áður.
HMS hefur sett sér það markmið að fram til ársins 2030 muni stofnunin draga úr kolefnislosun á hvern starfsmann um 40% miðað við árið 2019.
Frá og með árinu 2020 hefur HMS jafnað þá kolefnislosun sem hefur verið sýnt fram á að rekstur stofnunarinnar leiði að sér og meira til.
Græn skref
Í mars 2020 skráði HMS sig til leiks í verkefninu Græn skref í ríkisrekstri, sem rekið er á vegum Umhverfisstofnunar. Við lukum skrefunum fimm um áramótin 2022-2023 og vinnum nú að því að viðhalda þeim.
Nú þegar hefur HMS meðal annars unnið að bættri sorpflokkun, minnkað sóun, takmarkað notkun á plasti og einnota hlutum, hugað að betri orkunýtingu, lagt áherslu á umhverfisvænar samgöngur og innleitt vistvænni innkaup. HMS hefur einnig innleitt Grænt bókhald en þar eru teknar saman upplýsingar um innkaup stofnunarinnar á pappír, hreinlætisvörum, orku og öðrum rekstrarvörum og -þjónustu. Losun gróðurhúsalofttegunda vegna samgangna á vegum HMS eru einnig færðar inn í bókhaldið.
Með því að fylgjast með losun og eðli innkaupa á vöru og þjónustu vegna starfseminnar, getur HMS sett sér mælanleg markmið um minni sóun, vistvænni innkaup og samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Að sama skapi verður auðveldara að fara í aðgerðir til að minnka neikvæð umhverfisáhrif HMS. Enn fremur fær stofnunin tækifæri til að kolefnisjafna þá losun sem ekki næst að koma í veg fyrir og skoða árangurinn í samanburði við aðrar stofnanir sem taka þátt í verkefninu.
Kolefnislosun HMS 2019-2022 og aðrir umhverfisþættir
Árið 2022 nam losun frá rekstri HMS 219 kg af CO2íg á hvern starfsmann, sem er 22% minna en árið 2019 þegar mælingar hófust – en þó nokkuð meiri en árin 2020 og 2021.
Losun vegna aksturs frá 2019-2022 hefur rúmlega tvöfaldast og losun frá flugi er 2,5 sinnum meiri 2022 en 2021. Þess má þó geta að á sama tíma hafa eftirlit, heimsóknir og vettvangsskoðanir aukist í starfsemi HMS. Reynt er að sporna við losun vegna samgangna með því að takmarka utanlandsferðir, fjölga fjarfundum og nota vistvæna bílaleigubíla og leigubíla þegar á þeirri þjónustu þarf að halda.
Á sama tíma hefur endurvinnsluhlutfall úrgangs aukist úr 63% í 97%, fjöldi samgöngusamninga tæplega tvöfaldast og notkun á heitu vatni dregist saman.
Þá minnkaði pappírsnotkun á stöðugildi hratt, fór úr 12,3 kg á stöðugildi 2019 niður 0,7 kg 2022. Auk þess fór hlutfall umhverfisvottaðrar ræstiþjónustu úr 10% í 69% frá 2021 til 2022.
Nánar er fjallað um innleiðingu umhverfis- og loftslagsstefnu HMS í Umhverfisskýrslu HMS fyrir árið 2021 og Umhverfisskýrslu HMS fyrir árið 2022.
Kolefnisjöfnun vegna losunar 2019-2022
HMS hefur kolefnisjafnað þá losun sem stafaði af starfsemi stofnunarinnar á árunum 2019-2022 og meira til.
Árin 2019-2021 var það gert með gróðursetningu trjáa í samvinnu við Sólheima. Öll þeirra ræktun er lífræn og Tún-vottuð. Auk kolefnisjöfnunarinnar skapaði þátttakan í verkefninu mikilvæg störf fyrir íbúa Sólheima.
Til að jafna losun ársins 2022 voru keyptar voru 50 tonn af vottuðum kolefniseiningum hjá fyrirtækinu Yggdrasill Carbon (YGG). Plöntur verða gróðursettar á Arnaldsstöðum í Fljótsdal.




