Um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Stefnu­mót­un í hús­næð­is­mál­um

Stefnu­mót­un í hús­næð­is­mál­um

Um skipulag húsnæðismála gilda m.a. lög nr. 44/1998 um húsnæðismál. Tilgangur þeirra er m.a. að stuðla að því með lánveitingum og skipulagi húsnæðismála að landsmenn geti búið við öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum. Í því skyni kveða lögin á um að sveitarfélög skuli greina þörf fyrir íbúðarhúsnæði með tilliti til mismunandi búsetuforma. Þá skulu sveitarfélögin gera áætlun um hvernig þeirri þörf verði mætt og tryggja lóðaframboð til þess að mæta áætlun um húsnæðisþörf.

Þá kveða lögin einnig á um að ráðherra skuli boða til húsnæðisþings árlega þar sem fjalla skuli um húsnæðismál og leggja fram skýrslu um stöðu og þróun húsnæðismála. Húsnæðisþingið er öllum opið og til þess skal m.a. boða alþingismenn, fulltrúa HMS og fulltrúa sveitarfélaga, leigumarkaðarins og vinnumarkaðarins.

Innan árs frá alþingiskosningum skal ráðherra einnig leggja fram þingsályktunartillögu um um stefnumótun á sviði húsnæðismála til fjögurra ára í senn en við gerð hennar skal m.a. taka mið af umræðum á húsnæðisþingi, upplýsinga á sviði húsnæðismála frá HMS og húsnæðisáætlana sveitarfélaga. Tillagan skal innihalda verkefni sem ætlað er að tryggja landsmönnum aðgang að öruggu húsnæði.