Leiguskrá þinglýstra leigusamninga 2012 - 2023
Leiguskrá þinglýstra leigusamninga 2012 - 2023
Sækja leiguskrá þinglýstra leigusamninga(CSV)
Leiguskrá íbúðarhúsnæðis inniheldur upplýsingar sem HMS skráði upp úr þinglýstum leigusamningum íbúðarhúsnæðis frá 2011 til loka árs 2023. Þar má meðal annars finna upplýsingar um leiguverð, gildistíma leigusamnings og staðsetningu leiguhúsnæðis. Þess ber þó að geta að ekki var öllum leigusamningum þinglýst og inniheldur skráin því aðeins hluta af öllum leigusamningum um íbúðarhúsnæði á tímabilinu.
Skráningu þinglýstra leigusamninga á íbúðarhúsnæði hefur verið hætt og því verða þessi gögn ekki uppfærð eftir 31.12.2023.
HMS ber ekki ábyrgð á notkun upplýsinganna af hálfu þriðja aðila.
Sjá notkunarleiðbeiningar og eigendalýsingu leiguskrár hér fyrir neðan:
Eigendalýsing leiguskrá
Dálkur | Tegund | Lengd | Lýsing |
---|---|---|---|
leigusamningur | CHAR | 6 | Einkvæmt færslunúmer fyrir hvern leigusamning |
emnr | CHAR | 3 | Einkvæmt númer hvers sýslumannsembættis |
skjalnr | CHAR | 13 | Númer skjals (emnr+skjalanumer er einkvæmt númer skjals) |
fastnum | CHAR | 7 | Fastanúmer fasteignar |
heinum | CHAR | 7 | Heitinúmer er sjö stafa auðkennisnúmer staðfanga/fasteignaheita. Eitt heitinúmer er fyrir hvert staðfang. Annarstaðar er þetta kallað staðfanganúmer |
heimilisfang | VARCHAR | Heimilisfang fasteignar | |
postnumer | CHAR | 3 | Póstnúmer fasteignar |
svfn | CHAR | 4 | Sveitarfélagsnúmer er fjögurra stafa auðkennisnúmer |
sveitarfelag | VARCHAR | Heiti sveitarfélags | |
utgafudagur | DATE | Dagsetning undirskriftar leigusamnings | |
thinglystdags | DATE | Dagsetning þinglýsingar leigusamnings | |
dagsfra | DATE | Upphafsdagsetning leigusamnings | |
dagstil | DATE | Lokadagur leigusamnings (tómt ef samningurinn er ótímabundinn) | |
heildarverd | INTEGER | Heildarverð leigusamnings. Mánaðarverð. | |
staerd | DECIMAL | Stærð hins leigða í fermetrum | |
fj_herbergi | INTEGER | Fjöldi herbergja sem leigt er | |
otimabundid | INTEGER | Ef samningur er ótímabundinn þá 1 annars ef samningur rennur út þá er ekkert skrá hér en skráð dálkinn "DAGSTIL" | |
visitala | CHAR | 3 | Tegund vísitölu sem tengd er við leigusamning - BYG=Byggingarvísitala - EVT=Ekki vísitölutengt - GRE=Greiðslujöfnunarvísitala - LAU=Launavísitala - LÁN=Lánskjaravísitala - NEY=Vísitala neysluverðs - SAM=Breytt samkvæmt síðara samkomulagi - VTH=Leiguvísitala HMS |
dags_visitalaDATE Dagsetning vísitölu sem tengd er við leigusamning | |||
tegund | VARCHAR | Fasteignum er skipt í nokkra tegundarflokka - Sérbýli - Fjölbýli - Bílskúr/skúr - Sumarhús - Atvinnuhúsnæði - Annað | |
onothaefur_samningur | INTEGER | Ef samningur er ónothæfur þá 1 annars 0. Samningur verður ónothæfur í vísitöluútreikning og samanburð t.d. vegna þess að samningurinn er - Milli skyldra - Skráður ónothæfur - Fjármálastofnun leigir |
Leiðbeiningar varðandi endurnot opinberra upplýsinga
Rétthafi upplýsinganna/efnisins sem þessar leiðbeiningar ná yfir hvetur alla til að nota og endurnýta þær/það með hvaða hætti sem er.
Rétthafi upplýsinganna/efnisins (hér eftir kallað „upplýsingarnar“) gefur ótímabundna heimild til varanlegrar notkunar upplýsinganna hvar sem er, án gjaldtöku. Hann gefur eftir einkarétt sinn, sé honum til að dreifa, að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum.
Þessar leiðbeiningar skerða ekki réttindi sem notandi nýtur nú þegar samkvæmt íslenskum lögum.
Notandi má:
- afrita, birta, senda upplýsingarnar og dreifa þeim,
- aðlaga upplýsingarnar og
- nýta upplýsingarnar, þar með talið í hagnaðarskyni, til dæmis með því að setja þær saman við aðrar upplýsingar eða með því að sameina þær annarri vöru eða hugbúnaði.
Notandi verður að:
- taka fram hver uppruni upplýsinganna er og mælst er til þess að það sé gert með þeim hætti sem rétthafi upplýsinganna biður um
- einnig er mælst til þess að vísað sé í þessar leiðbeiningar.
Ef rétthafinn hefur ekki óskað eftir að uppruni upplýsinganna verði tilgreindur með tilteknum hætti má nota eftirfarandi tilvitnun: „Byggir á upplýsingum frá“ og nafngreina þar á eftir rétthafa upplýsinganna.
Í þeim tilfellum þar sem upplýsingar frá mörgum rétthöfum eru notaðar og endurnýttar í einu verki og erfitt er að telja upp alla, nægir að nota tengil á vefslóð sem inniheldur tilvísun til allra rétthafa upplýsinganna.
Tilkynningar
Ef notandi verður var við að upplýsingarnar hafi að geyma eftirfarandi er mælst til þess að hann geri rétthafa viðvart:
- persónuupplýsingar;
- einkennismerki opinberra aðila eða skjaldarmerki nema þar sem þau geta talist mikilvægur hluti af skjalinu eða gagnasafninu;
- réttindi þriðja aðila sem rétthafi upplýsinganna hefur ekki heimild til að veita aðgang að;
- efni undir öðrum hugverkarétti eins og einkaleyfi, vörumerki eða hönnun;
- auðkennandi skjöl, svo sem vegabréf.
Ekkert samþykki
Notkun upplýsinganna gefur notanda hvorki heimild til þess að gefa til kynna að hann sé í opinberri stöðu né að rétthafi hafi samþykkt notkun hans á upplýsingunum sérstaklega.
Engin ábyrgð
Upplýsingarnar veita notanda ekki heimild til framkvæmda eða aðgerða sem annars eru ólöglegar eða þarfnast sérstakra leyfa. Rétthafi upplýsinganna er undanskilinn fyrirsvari, ábyrgð, skyldum og skaðabótum í tengslum við upplýsingarnar að því marki sem lög leyfa.
Rétthafi upplýsinganna ber ekki ábyrgð á villum eða vanskráningu í upplýsingunum og er ekki ábyrgur fyrir neinu tjóni, meiðslum eða skaða sem hlýst af notkun þeirra. Rétthafi upplýsinganna ábyrgist ekki áframhaldandi aðgengi að upplýsingunum.
Skilgreiningar
Í þessum leiðbeiningum hafa orðin hér fyrir neðan eftirfarandi merkingu:
- „rétthafi“ er opinber aðili sem annaðhvort getur talist höfundur upplýsinga eða hefur fengið heimild frá höfundi (þriðja aðila) til að veita aðgang að upplýsingunum.
- „upplýsingar“ eru allt það efni sem rétthafi hefur veitt aðgang að.
Þessar leiðbeiningar byggja á VII. kafla upplýsingalaga nr.140/2012. Einnig var höfð hliðsjón af breska „Open government licence“ http://www.nationalarchives.gov.uk/doc/open-government-licence/version/3