4. desember 2024
17. janúar 2023
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í desember 2022
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er 950,9 í desember 2022 (janúar 1994=100) og lækkar um 0,7% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,4%. Sérbýlishluti vísitölunnar er 954,1 í desember 2022 (janúar 1994=100) og lækkaði um 2,1% milli mánaða og fjölbýlishluti vísitölunnar er 951,2 í desember 2022 (janúar 1994=100) og lækkaði milli mánaða um 0,3%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er 950,9 í desember 2022 (janúar 1994=100) og lækkar um 0,7% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,4%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 1,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 17,4%.
Sérbýlishluti vísitölunnar er 954,1 í desember 2022 (janúar 1994=100) og lækkaði um 2,1% milli mánaða og fjölbýlishluti vísitölunnar er 951,2 í desember 2022 (janúar 1994=100) og lækkaði milli mánaða um 0,3%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Stuðst er við kaupsamninga síðastliðinna þriggja mánaða við útreikning vísitölunnar.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis eftir að útgildi hafa verið hreinsuð út. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um gögn um íbúðaverðsvísitölu frá 1994.
Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS