15. nóvember 2022

Vísitala íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu í október 2022

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er 960,2 í október 2022 (janúar 1994=100) og hækkar um 0,6% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,0%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 7,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 21,5%.

Sérbýlishluti vísitölunnar er 986,8 í október 2022 (janúar 1994=100) og lækkaði um 0,7% milli mánaða og fjölbýlishluti vísitölunnar er 954 í október 2022 (janúar 1994=100) og hækkar um 0,9% á milli mánaða.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Stuðst er við kaupsamninga síðastliðinna þriggja mánaða við útreikning vísitölunnar.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis eftir að útgildi hafa verið hreinsuð út. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um gögn um íbúðaverðsvísitöluna frá 1994.

Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS