20. febrúar 2026

Viðhaldsþörf húsa á Íslandi

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS hefur endurvakið útgáfu á Rb-blöðunum, sem eru tækni- og leiðbeiningablöð um mannvirkjagerð. Viðfangsefni Rb-blaðanna hafa verið fjölbreytt í gegnum tíðina. Í tengslum við útgáfu nýrra blaða endurútgefur HMS, í lok hvers mánaðar, eldri blöð sem fjalla um málefni líðandi stundar.

Rb-blað mánaðarins flokkast undir sérrit og fjallar um viðhaldsþörf húsa á Íslandi.

Rb-blað mánaðarins

Blaðið var gefið út í september 2010 og eru höfundar Benedikt Jónsson, verkfræðingur, og Björn Marteinsson, arkitekt og verkfræðingur. Ritið er úrdráttur og nokkuð einfölduð framsetning á skýrslu nr. 97-14 „Ástand mannvirkja og viðhaldsþörf, sem gefin var út af Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins í desember 1997. Þar að auki er gerð betri grein fyrir upplýsingum frá húseigendum heldur en gert var í fyrri skýrslu.

Megintilgangur umfjöllunarinnar er að kynna húseigendum hvernig húseignir hrörna með aldrinum og hvenær má vænta viðgerða á hinum ýmsu byggingarhlutum.

Mikilvægt er að hugsa vel um húsin okkar. Rétt viðhald kemur í veg fyrir skemmdir, tryggir öryggi og lengir líftíma húsa. Með reglulegu viðhaldi eru húsin einnig fallegri, heilsusamlegri og þægilegri til búsetu.

Öll útgefin Rb-leiðbeiningarblöð

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS