13. maí 2025
27. október 2022
Úttekt á orkumerkingum eldunartækja
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Í september síðastliðinn lét Húsnæðis- og mannvirkjastofnun faggilta skoðunarstofu BSI á Íslandi framkvæma skoðun á ástandi orkumerkinga eldunartækja. Þau eldunartæki sem um ræðir eru bakarofnar(rafmagns og gas), eldavélar og gufugleypar.
Niðurstaðan var sú að 89% tækja voru með orkumerkimiða af réttri gerð, á réttum stað, í réttri stærð og því engar athugasemdir því gerðar við þau tæki. Í heild voru skoðuð 337 tæki og af þeim voru 300 tæki með engum athugasemdum.
Alls voru 90% tækja með orkumerkimiða, óháð því hvort hann hafi verið réttur eða ekki. Af tækjum sem voru með orkumerkimiða voru einungis gerðar athugasemdir við tvö tæki, ýmist vegna staðsetningar eða tegundar miða. Með öðrum orðum þá voru í heild 10% tækja sem voru skoðuð án orkumerkmiða.
Hjá einum söluaðila fannst eitt tæki með aðra tegund orkumerkimiða. Sá merkimiði var A4 blað í réttri stærð en ekki í lit.
Hægt er að nálgast markaðskönnunina hér á vef HMS: https://hms.is/markadseftirlit/visthonnun-og-orkumerkingar/markadskannanir
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS