8. maí 2025
12. apríl 2022
Útskrift nýliða hjá Slökkviliði Borgarbyggðar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Um nýliðna helgi lauk hópur nýliða hjá Slökkviliði Borgarbyggðar verklegum hluta námskeiða og útskrifaðist með því úr Brunamálaskólanum. Samtals hefur þessi hópur lokið 90 kennslustunda námi, bæði bóklegu og verklegu, í slökkvistarfi og reykköfun. Þessum hóp nýliða hefur þegar verið bætt við útkallslið Slökkviliðs Borgarbyggðar og mun þar sækja sér frekari þjálfun og reynslu undir handleiðslu reyndari slökkviliðsmanna.
HMS starfrækir Brunamálaskólann sem er ætlaður slökkviliðs- og eldvarnaeftirlitsmönnum. Brunamálaskólinn hefur umsjón með menntun slökkviliðsmanna, bæði bóklegri og verklegri kennslu og frekari endurmenntun í starfi. Undanfarin misseri hefur HMS átt í góðu samstarfi við slökkvilið landsins með námskeiðahald og hefur fjöldi slökkviliðsmanna útskrifast úr bóklegu og verklegu námi frá því að nýtt brunavarnasvið HMS tók við í október árið 2020.
HMS vill óska nýjum slökkviliðsmönnum til hamingju með áfangann og sömuleiðis Slökkviliði Borgarbyggðar með frábæra styrkingu á útkallsliði sínu.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS