13. nóvember 2026

Upptaktur að heildarendurskoðun skipulagslaga

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Líflegar umræður sköpuðust um heildarendurskoðun skipulagslaga á árlegum skipulagsfulltrúadegi HMS
  • Skipulagsfulltrúar landsins leggja áherslu á að markmið og tilgangur heildarendurskoðunarinnar séu skýr
  • Skipulagsfulltrúadagurinn er helsti samráðsvettvangur HMS við skipulagsfulltrúa sveitarfélaganna

Hvað er skipulagsfulltrúadagurinn?

Skipulagsfulltrúadagurinn er vettvangur fyrir HMS til þess að fræða og ræða stöðu og þróun skipulagsmála við skipulagsfulltrúa sveitarfélaganna. Þar gefst skipulagsfulltrúunum tækifæri til þess að eiga beint samtal við HMS um það helsta sem brennur á í starfi þeirra. Einnig er mikilvægt fyrir skipulagsfulltrúana að hitta þarna starfsbræður og –systur víðs vegar að af landinu. Fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga taka einnig þátt í fundinum.

Heildarendurskoðun skipulagslaga til umræðu

Í upphafi dags fór Ólafur Árnason framkvæmdastjóri skipulags og umhverfismatssviðs yfir yfirstandandi breytingar á skipulagslögum og fyrirhugaða endurskoðun laganna.

Eftir kynningu frá HMS var deginum skipt niður í tvær vinnustofur þar sem m.a. voru  ræddar þær áskoranir og tækifæri sem skapast við fyrirhugaða heildarendurskoðun skipulagslaga og leiðir til samráðs í ferlinu.

Meðal tillagna sem komu þar fram:

  • Skýra þurfi markmið heildarendurskoðunar og hvort þörf sé á gagngerri kerfisbreytingu eða hvort hægt sé að bæta núverandi kerfi
  • Greina markmið einföldunar, fyrir hverja á að einfalda kerfið og hvaða áhrif það getur haft á gagnsæi, gæði og aðgang hagaðila til að hafa áhrif á ákvarðanir um landnýtingu
  • Greina hlutverk og ábyrgð sveitarfélaga, HMS, ráðgjafa, landeigenda og ráðherra
  • Meta samspil skipulagsstiga, þar með talið að skoða kosti og galla þess að aðalskipulagsstigið sé stefnumiðað og reglumiðað og að meira svigrúm sé til útfærslu í deiliskipulagi
  • Greina hæfni, réttindi og endurmenntun skipulagsfulltrúa og skipulagsráðgjafa
  • Greina hvað eigi að vera í lögum, hvað í reglugerð og hvað í leiðbeiningum

Það efni sem varð til úr vinnustofum dagsins mun nýtast í áframhaldandi vinnu við heildarendurskoðun skipulagslaga.  

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS