22. júní 2026
22. júní 2026
Umhverfismat í maímánuði
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Í maímánuði voru gefin út níu álit eða ákvarðanir á grundvelli laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
- Þar af voru fjögur álit um umhverfismat, tvö álit um matsáætlun og þrjár ákvarðanir um matsskyldu framkvæmdar.
- Um er að ræða fjölbreyttar framkvæmdir, svo sem efnistöku, endurvinnslustöð, hænsnabú, skógrækt, vegagerð, fiskeldisstöð á landi og ferðaþjónustuuppbyggingu.
Landeldi í Hvalfirði - 28.000 tonna eldi á ári – Álit um umhverfismat
Aurora fiskeldi ehf. áformar að byggja landeldistöð fyrir lax á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit. Fyrirhuguð framleiðsla er um 28.000 tonn á ári. Stöðin verður staðsett austast á iðnaðarsvæðinu á Grundartanga og verður byggð í þremur áföngum. 33 umsagnir bárust um málið inn á Skipulagsgátt.
Áður en framkvæmdaraðili sækir um leyfi fyrir framkvæmd og starfsemi þarf að ljúka viðeigandi breytingum á aðal- og deiliskipulagi svæðisins.
Sundabraut, Reykjavík – Álit um umhverfismat
Í umhverfismatsskýrslu Vegagerðarinnar eru kynnt áform um lagningu Sundabrautar milli Sæbrautar og Kjalarness. Meginmarkmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta á svæðinu, stytta vegalengdir og bæta tengingar á milli svæða. Vegagerðin leggur fram tvo aðalvalkosti fyrir þverun Kleppsvíkur, þ.e. milli Sæbrautar við Sundahöfn og Gufuness, annars vegar jarðgöng og hins vegar 30 m háa brú. 122 umsagnir bárust um málið inn á Skipulagsgátt.
Í framhaldi má vænta skipulagsbreytinga hjá Reykjavíkurborg og að nánari útfærslur á framkvæmdinni líti dagsins ljós.
Hoffell í Nesjum, Sveitarfélaginu Hornafirði – Álit um matsáætlun
Bláa Lónið hf. áformar uppbyggingu við Hoffell í Nesjum í Sveitarfélaginu Hornafirði. Áformað er að reisa hótel og baðstað með veitingaaðstöðu, auk annarrar aðstöðu tengdri útivist og ferðamennsku. 84 umsagnir bárust um málið inn á Skipulagsgátt.
Matsáætlun framkvæmdaraðila er lýsing á því hvernig fyrirhugað er að standa að umhverfismati framkvæmdar. Í áliti HMS um matsáætlun setur stofnunin fram leiðbeiningar stofnunarinnar til framkvæmdaraðila um vinnslu, efni og framsetningu umhverfismatsskýrslu.
Næsta skref í ferlinu er undirbúningur umhverfismatsskýrslu af hálfu framkvæmdaraðila sem síðar verður lögð fram til kynningar áður en HMS gefur út álit um umhverfismat framkvæmdarinnar.
Önnur mál maímánaðar:
Efnistaka í Gandheimum, Hvalfjarðarsveit – Álit um umhverfismat
Skógrækt í landi Villingavatns í Grafningi – Álit um umhverfismat
Vikurnám við Merkihvol, Rangárþingi ytra – Álit um matsáætlun
Endurvinnslustöð lífræns úrgangs í Þorlákshöfn, Ölfusi - Matsskylduákvörðun
Niðurstaða: Framkvæmd háð umhverfismati.
Skógrækt í Fagranesi í Öxnadal, Hörgársveit - Matsskylduákvörðun
Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati. Ákvörðun HMS hefur verið kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Úrskurður liggur ekki fyrir.
Sætún II Ungauppeldi, Reykjavíkurborg - Matsskylduákvörðun
Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




