9. júlí 2020

Tjaldsvæði - Hleðsla rafbíla.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Nú fer í hönd sá tími sem gestir á tjaldsvæðum eru hvað flestir. Með mikilli fjölgun rafbíla og tengiltvinnbíla fjölgar einnig eigendum slíkra bíla á tjaldsvæðum og einhverjir þeirra munu eflaust hugsa sér að hlaða bíla sína þar. Af þessu tilefni vill HMS vekja athygli eigenda og rekstraraðila tjaldsvæða á að sérstaka aðgát þarf að viðhafa á stöðum þar sem hleðsla rafbíla fer fram, þar gilda sérstakar öryggiskröfur umfram almennar öryggiskröfur sem gerðar eru til raflagna og rafbúnaðar. Samantekt á helstu öryggisatriðum má nálgast á vef HMS, www.hms.is, og hér fyrir neðan.

Sé ætlunin að leyfa eða jafnvel bjóða sérstaklega upp á hleðslu rafbíla hvetur HMS til að haft sé samband við löggiltan rafverktaka varðandi uppsetninguna til að tryggja að öryggi fólks og eigna verði ekki stefnt í hættu.

  • Hver tengipunktur (t.d. tengill eða inntaksbúnaður á bíl) skal varinn með yfirstraumvarnarbúnaði, t.d. sjálfvari, sem aðeins ver þennan tiltekna tengipunkt.
  • Hver tengipunktur skal varinn með 30mA bilunarstraumsrofa (lekastraumsrofa) sem aðeins ver þennan tiltekna tengipunkt.
  • Bilunarstraumsrofar ættu að vera af gerð B – ekki má nota bilunarstraumsrofa af gerð AC, sem er algengasta gerðin á markaðnum. 
  • Bilunarstraumsrofa af gerð A má nota sé tryggt að DC-bilunarstraumur verði að hámarki 6mA, eða að settur sé upp annar búnaður til útleysingar fari hann yfir 6mA.
  • Tryggja þarf að „ofar“ í raflögn séu ekki bilunarstraumsrofar sem þola minni DC-bilunarstraum – þeir gætu hætt að virka með réttum hætti.
  • Færanlegir tenglar (snúrutenglar), t.d. á framlengingarsnúru eða fjöltengi, eru ekki leyfilegir. 
  • 16A tengla til heimilis- og ámóta nota (Schuko) ætti ekki að nota til hleðslu rafbíla – sé það gert skal tryggja að hleðslustraumur geti að hámarki orðið 10A.
  • Uppsetning raflagna og búnaðar til hleðslu rafbíla skal vera á hendi löggiltra rafverktaka.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS