13. maí 2025
18. september 2020
Þó nokkur hækkun á vísitölu íbúðaverðs milli mánaða
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár hækkaði vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu um 0,8% á milli júlí og ágúst en hafði þar áður hækkað um 1,2% milli júní og júlí. Ef mánaðarhækkun vísitölunnar nú er skoðuð í samhengi við hækkanir frá ársbyrjun 2018 sést að hækkunin er á við tvöfalt staðalfrávik mánaðahækkana frá því tímabili, sem má teljast þó nokkur hækkun. Hins vegar ef hækkunin er skoðuð í samhengi við lengra tímabil, þ.e. frá byrjun árs 2015, sést að hún er um eitt staðalfrávik. Árshækkun vísitölu íbúðaverðs mælist nú 5,2% og hefur 12 mánaða takturinn farið hækkandi milli mánaða frá því í apríl síðastliðnum en var um 3,6% í ágúst í fyrra.

Verð fjölbýlis hækkaði um 0,7% frá júlí til ágúst og um 0,9% hækkun mælist á milli mánaða á íbúðum í sérbýli. Verð fjölbýlis hefur hækkað um 5,2% frá ágúst í fyrra og tólf mánaða hækkun sérbýlis mælist nú um 4,8%. Líkt og sjá má á myndinni hér að neðan hefur 12 mánaða hækkunartaktur íbúða í sérbýli verið að aukast hraðar á undanförnum mánuðum en á íbúðum í fjölbýli.
Sé þróun vísitölu Þjóðskrár borin saman við vísitölu paraðra viðskipta (Case-Shiller) sem hagdeild HMS reiknar út sést að íbúðir aðrar en nýbyggingar hafa verið að hækka mest í verði að undanförnu á höfuðborgarsvæðinu. Eins og fram kom í síðustu mánaðarskýrslu HMS um húsnæðismarkaðinn mældist 12 mánaða hækkunin í júlí síðastliðnum um 7,4% alls. Þar sem vísitala Þjóðskrár tekur með í reikninginn verðþróun nýbygginga en Case-Shiller vísitalan ekki er útlit fyrir að nýbyggðar íbúðir eru að hækka minna en þær sem eldri eru.
Raunverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu (þ.e. vísitala íbúðaverðs í hlutfalli við vísitölu neysluverðs) hækkaði um 0,3% milli mánaða og um 1,9% frá ágúst 2019.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS