13. maí 2025
7. mars 2024
Tæplega þúsund leigusamningar tóku gildi í leiguskrá í febrúar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Alls tóku 964 leigusamningar í leiguskrá HMS gildi í janúar og hefur þeim fækkað lítillega á milli mánaða. Þrír af hverjum fjórum samningum sem tóku gildi voru fyrir leiguíbúðir á höfuðborgarsvæðinu.
Á mynd hér að neðan má sjá fjölda leigusamninga í leiguskrá eftir upphafsdögum og landshlutum frá júlímánuði í fyrra. Líkt og myndin sýnir hafa rúmlega þúsund samningar tekið gildi í hverjum mánuði, ef frá er talinn ágústmánuður þar sem tvöfalt fleiri samningar tóku gildi.
Fjöldi samninga í febrúar 2024 er nokkuð minni en á fyrri mánuðum, en á tímabilinu hafa aldrei færri en þúsund samningar tekið gildi. Þó ber að taka fram að fjöldi samninga sem taka gildi breytist afturvirkt, þar sem samningar sem hafa þegar tekið gildi geta bæst við í leiguskrá í hverjum mánuði.
Hins vegar gefa febrúartölurnar vísbendingu um að leigusamingum fækki á milli mánaða, en samkvæmt síðustu frétt HMS upp úr leiguskrá frá febrúarmánuði höfðu 1.092 samningar tekið gildi janúar.
Fjöldi virkra leigusamninga í Leiguskrá HMS nemur nú um 20.500 og fjölgar þeim um rúmlega 400 á milli mánaða, þar sem 538 samningar féllu úr gildi á móti þeim 964 sem tóku gildi. Mynd hér að neðan sýnir fjölda gildra samninga í leiguskrá eftir mánuðum, eftir því sem nýir leigusamningar taka gildi og gamlir samningar falla úr gildi.
HMS telur að Leiguskráin geymi nú um rúmlega 60 prósent af leigumarkaði, þar sem nýjasta lífskjarakönnun Hagstofu bendir til þess að heimili á leigumarkaði hér á landi séu um 34 þúsund talsins. Markmið HMS er að Leiguskráin nái upp í rúm 80 prósent af markaðnum.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS