31. ágúst 2026

Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050 undirritað

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Þann 27. ágúst undirrituðu fulltrúar allra sveitarfélaga á Vestfjörðum, ásamt fulltrúa HMS, nýtt svæðisskipulag fyrir Vestfirði
  • Fulltrúar komu saman við minnismerki um Kollabúðafundi í Þorskafirði, sögulegt funda- og samkomusvæði
  • Með svæðisskipulaginu hafa sveitarfélögin náð saman um framtíðarsýn og sameiginleg markmið um þróun samfélags, atvinnulífs og umhverfis á Vestfjörðum

Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050 hefur nú verið staðfest. Fullrúar allra sveitarfélaganna og HMS komu saman í Þorskafirði við minnismerki þar sem haldnir voru Kollabúðafundir um miðja nítjándu öld og þar sem Þorskafjarðarþing fór fram á þjóðveldistíma og öldum þar á eftir. Auglýsing um gildistöku skipulagsins birtist í Stjórnartíðindum von bráðar. Hægt verður að nálgast gögn svæðisskipulagsins í Skipulagsvefsjá

Stefnumarkandi áætlun átta sveitarfélaga á Vestfjörðum

Svæðisskipulag Vestfjarða er stefnumarkandi áætlun átta sveitarfélaga á Vestfjörðum um sameiginlega framtíðarsýn til næstu 25 ára.

Sett er fram stefna fyrir fimm málefnasvið:

  • Náttúru og auðlindir
  • Grunnkerfi
  • Samfélagsauð
  • Atvinnu og nýsköpun
  • Menningarauð

Undir hverju málefnasviði má finna leiðarljós og sameiginleg markmið.

Stöðumat um stöðu og þróun og umhverfismat áætlunar

Tvö fylgirit eru með svæðisskipulaginu og hafa verið til hliðsjónar við mótun tillögunnar. Annars vegar er það stöðumat um stöðu og þróun og hinsvegar umhverfismat áætlunarinnar.

Svæðisskipulagsáætlanir eru leiðarljós og samræmingartæki fyrir stefnumótun sveitarfélaga. Vísir til framtíðar, byggður á núverandi stöðu, sem fróðlegt er að kynna sér.

Skýringarmyndir úr Svæðisskipulagi Vestfjarða.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS