3. febrúar 2025

Stöðugur vöxtur í Kópavogsbæ

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Áætlað er að íbúum fjölgi um 4.086 manns á næstu 5 árum, sem er fjölgun um 10,4 prósent.
  • Fjöldi íbúða í byggingu í dag er í takt við fólksfjölgun og áætlaða fjölskyldustærð í sveitarfélaginu.
  • Sveitarfélagið stefnir að úthlutun lóða fyrir 2.714 íbúðir á næstu 5 árum til að tryggja nægt framboð.

Kópavogsbær hefur staðfest endurskoðun á húsnæðisáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2025. Spáð er að íbúum sveitarfélagsins fjölgi um 8.598 manns á næstu tíu árum, sem er 21,9 prósent aukning. Til samanburðar hefur íbúum í sveitarfélaginu fjölgað um 4.352 frá árinu 2020 eða um 11,6 prósent.

Vax­andi íbúða­þörf

Samkvæmt húsnæðisáætluninni er gert ráð fyrir að þörf verði fyrir um 314 íbúðir á ári, 1.572 íbúðir á næstu 5 árum og 3.307 íbúðir næstu 10 ár. Til samanburðar þá hefur fullbúnum íbúðum fjölgað að meðaltali um 303 á ári síðastliðin 5 ár.

Samkvæmt síðustu talningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar voru 718 íbúðir í byggingu í september 2024. Þessi tala er lítillega lægri en á sama tíma síðustu tvö ár. Á meðfylgjandi mynd má sjá að stór hluti þessara íbúða er á framvindustigi 2 og 3, sem þýðir annars vegar að undirstöður séu fullgerðar og hins vegar að unnið sé við að reisa burðarviki mannvirkisins. Fjöldi íbúða í byggingu er því í takt við þá íbúðaþörf sem sveitarfélagið áætlar að það standi frammi fyrir á næstu tveimur árum en nauðsynlegt að nýjar framkvæmdir fari af stað svo ekki verði frekari samdráttur í fjölda í búða í byggingu.

Fjöl­breytt fram­boð hús­næð­is og stuðn­ing­ur við fyrstu kaup­end­ur

Kópavogsbær leggur ríka áherslu á fjölbreytt framboð húsnæðis og tryggt aðgengi allra að öruggu heimili á viðráðanlegu verði. Með þéttingu byggðar á skilgreindum þróunar-svæðum er markvisst unnið að blandaðri landnotkun. Þá er gert ráð fyrir að stærsti hluti nýbygginga næstu ára verði fjölbýlishúsabyggð, með sérstakri áherslu á minni íbúðir, allt að 90 fermetrum.

Markmið bæjarfélagsins er að efla almennan leigumarkað, fjölga félagslegum íbúðum og styðja fyrstu kaupendur með auknu framboði hagkvæmra fasteigna. Til að ná þessum markmiðum vinnur sveitarfélagið markvisst að samstarfi við byggingaraðila, með það m.a. að leiðarljósi að hluti nýrra íbúða renni inn í félagslegt húsnæðiskerfi og stuðli þannig að betra jafnvægi á markaðnum.

Nægt lóða­fram­boð til að mæta vax­andi íbúða­þörf

Kópavogsbær hefur nú skipulagt lóðir fyrir 3.284 íbúðir og á næstu 5 árum stefnir sveitarfélagið að því að úthluta lóðum fyrir allt að 2.714 íbúðir. Lóðaframboð ætti því að  mæta vel áætlaðri íbúðaþörf gangi úthlutunaráætlanir eftir. Sé hins vegar litið til stöðu lóðanna í skipulagi þá er talsverður fjöldi þeirra tilgreindur sem framtíðarsvæði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS