6. október 2026

Slökkvilið landsins sinntu 687 útköllum á öðrum ársfjórðungi 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • 687 útköll alls, þar af 58 útköll vegna umferðaslysa.
  • 48 gróðureldar, töluverð aukning miðað við árið 2025.
  • 53 eldar utan bygginga.

Slökkvilið landsins sinntu alls 687 útköllum á öðrum ársfjórðungi 2026. Þetta kemur fram í útkallsskýrslugrunni slökkviliða, sem HMS hefur unnið tölfræðiupplýsingar úr fyrir tímabilið.

Á meðal verkefna slökkviliða á öðrum ársfjórðungi 2026 voru 58 útköll vegna umferðarslysa, 52 útköll vegna viðvörunarkerfa þar sem ekki var eldur og 48 útköll vegna gróðurelda.

Færri út­köll vegna elds utan bygg­inga

Útköll vegna elds utan bygginga voru 28% færri en á sama tímabili árið 2025, samkvæmt upplýsingum úr útkallsskýrslugrunni slökkviliða.

Gróð­ureld­ar

Gróðureldar eru áfram áhyggjuefni. Á öðrum ársfjórðungi 2026 voru skráð 48 útköll vegna gróðurelda og á fyrsta ársfjórðungi voru þau 64. Það sem af er ári hafa því verið skráð 113 útköll vegna gróðurelda. Til samanburðar er meðaltal síðustu tíu ára 87 gróðureldar á ári. Flest útköll vegna gróðurelda voru árið 2021, eða 144, og næstflest árið 2023, eða 106.

Útköll vegna gróðurelda eru að jafnaði færri á síðari hluta ársins en þeim fyrri. Þróunin á þriðja og fjórða ársfjórðungi mun því ráða miklu um hvort árið 2026 verður yfir langtímameðaltali.

Slökkvi­lið­in fara í út­köll vegna bil­ana í við­vör­un­ar­kerf­um

Af þeim 687 útköllum sem slökkvilið landsins sinntu á öðrum ársfjórðungi 2026 voru 363 vegna elds. Útköll þar sem viðvörunarkerfi fór í gang án þess að eldur væri til staðar voru 52, sem er nokkuð fleiri tilfelli en á sama tímabili árið 2025. Slík útköll eru oft í viðbragðsflokki F2, eða næsthæsta forgangi og geta því falið í sér forgangsakstur. Mikilvægt er að fækka óþarfa útköllum vegna viðvörunarkerfa þar sem þau taka tíma, skapa álag á slökkvilið og geta aukið áhættu í umferð.

Slökkvilið gegna lykilhlutverki í öryggi samfélagsins og eru ein af grundvallarstoðum við að vernda líf, heilsu, eignir og umhverfi. Starfsemi þeirra er jafnframt nátengd öðrum viðbragðskerfum, svo sem almannavörnum, lögreglu og heilbrigðisþjónustu. Slökkvilið eru að meginstefnu til rekin á ábyrgð sveitarfélaga og hefur sú skipan verið byggð upp í takt við sveitarfélagaskipan. Sú þróun hefur leitt til ólíkrar stærðar og getu slökkviliða. Þá hefur reynslan sýnt að framkvæmd og þjónustustig eru misjöfn milli svæða, sem getur haft áhrif á jafnræði íbúa til öryggis.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS