13. maí 2025
25. apríl 2022
Slökkviliðsstjórar landsins á Húsavík um helgina
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Félag slökkviliðsstjóra hélt sinn árlega aðalfund um síðustu helgi á Húsavík. Forstjóra HMS og starfsmönnum Brunavarnasviðs HMS var boðið þangað og héldu nokkur erindi á fræðsludagskrá félagsins á laugardeginum. Meðal annars var fjallað um nýtt stjórntæki HMS og slökkviliðanna, svokallaða Brunagátt, sem er rafræn gátt fyrir öll slökkvilið landsins, farið var yfir stöðu slökkviliða í kjölfarið af úttektum ársins 2021, það helsta sem hefur áunnist eða er að gerast í forvarnarmálum í samstarfi við slökkviliðin, sem og stefnu og framtíðarsýn Brunamálaskólans. Að lokinni dagskrá var nýleg slökkvistöð á Húsavík heimsótt þar sem sex slökkviliðsstjórar undirrituðu samning um kaup á sex nýjum dælubílum eftir sameiginlegt útboð. Þau slökkvilið sem gengu frá umræddum kaupum eru; Slökkvilið Norðurþings, Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar, Slökkvilið Dalvíkur, Brunavarnir Árnessýslu, Slökkvilið Fjarðarbyggðar og Brunavarnir Austur-Skaftafellssýslu.
HMS óskar framangreindum slökkviliðum til hamingju með kaupin. Einnig þakkar HMS slökkviliðs- og varaslökkviliðsstjórum, sem og öðrum stjórnendum slökkviliða landsins, fyrir góðar umræður og samveru um helgina.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS