16. júní 2026
16. júní 2026
Skipulagsmál maímánaðar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- HMS staðfesti tvær nýjar aðalskipulagsáætlanir og 33 breytingar á aðalskipulagi í maímánuði. Þá var lokið við athugun á 14 nýjum deiliskipulagsáætlunum og 14 breytingum á deiliskipulagi.
- Meðal stærstu mála mánaðarins voru nýtt aðalskipulag Hveragerðisbæjar og rammahluti aðalskipulags Mosfellsbæjar fyrir Blikastaðaland, þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu allt að 3.600 íbúða.
- Einnig voru afgreiddar breytingar á aðalskipulagi Kópavogsbæjar vegna rammahluta Kársness og á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps vegna rammahluta um þróun byggðar í Vaðlaheiði.
Aðalskipulag Hveragerðisbæjar 2025-2037
Staðfest var nýtt Aðalskipulag Hveragerðisbæjar 2025-2037. Þar er í fyrsta skipti skilgreindur rammahluti aðalskipulags fyrir miðbæinn og Breiðumörk. Samgöngustefna Hveragerðisbæjar var unnin samhliða endurskoðun, þar sem tilgangur stefnunnar var að leggja fram heildstæða sýn á framtíðaruppbyggingu samgangna.
Breyting á Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030 – Blikastaðaland
HMS staðfesti breytingu á Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030. Í rammahluta aðalskipulags felast áform um 3.600 nýjar íbúðir af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Skilgreint er nýtt 7,5 ha svæði fyrir verslun og þjónustu og 3 ha opið svæði til sérstakra nota, en íbúðarbyggð minnkar sem því nemur. Þá eru gerðar breytingar á stígakerfi auk þess sem Borgarlína er innfærð sem tengibraut.
Breyting á Aðalskipulagi Kópavogsbæjar 2019-2040 – vegna rammahluta Kársness
Staðfest var breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040. Í breytingunni felst að á 57,2 ha svæði sem skilgreint er sem þróunarsvæði, er sett fram stefna um framtíðar uppbyggingu sem skiptist í eftirtalda landnotkunarreiti: verslun og þjónustu, athafnasvæði, íbúðarsvæði og hafnarsvæði. Ekki er gerð breyting á einstökum landnotkunarreitum.
Breyting á Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 og Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2020 vegna rammahluta um þróun byggðar í Vaðlaheiði
HMS staðfesti breytingu á Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 og breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 vegna rammahluta um þróun byggðar í Vaðlaheiði. Í breytingunni felst að mörkuð er heildstæð stefna um þróun byggðar í Vaðlaheiði á um 1.090 ha svæði.
Fleiri mál má finna inn á Skipulagsgátt og vakin er athygli á að þar er m.a. hægt að leita að málum eftir tímabilum, svæðum, ferli og stöðu máls. Jafnframt er hægt að vakta valin svæði.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




