1. júní 2023
29. mars 2023
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stofnframlög: Fyrsta úthlutun ársins 2023
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stofnframlög í fyrstu úthlutun fyrir árið 2023. Stofnframlögin eru veitt til óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga til byggingar eða kaupa á almennum leiguíbúðum fyrir tekju- og eignalága. HMS úthlutar stofnframlögum fyrir hönd ríkisins og tekur á móti og vinnur úr umsóknum. Stofnframlögin frá ríkinu í þessari úthlutun hljóða upp á 3,9 milljarða.
Umsóknarfrestur er til 17. apríl næstkomandi
Nálgast má allar frekari upplýsingar um umsóknarferlið á heimasíðu HMS. Athygli er vakin á því að reglur um hámarksbyggingarkostnað hafa verið hækkaðar frá síðustu úthlutun.
Stofnframlög hafa verið veitt til uppbyggingar á yfir 3.000 íbúðum
Frá árinu 2016 þegar lög um almennar íbúðir tóku gildi hafa stjórnvöld úthlutað framlögum upp á rúmlega 30 milljarða til uppbyggingar á yfir 3.000 hagkvæmum leiguíbúðum víðsvegar um landið.
Markmiðið með stofnframlögum er að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum og bæta húsnæðisöryggi eignalítilla og tekjulágra. Húsnæðiskostnaður á að vera í samræmi við greiðslugetu og að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna.
Það eru ýmsar kröfur gerðar til almennra íbúða, sem eru byggðar í gegnum stofnframlög, þær þurfa að uppfylla skilyrði um hagkvæmni og þær eru ætlaðar fyrir tekju-og eignalága. Þessi umgjörð er til þess fallin að lækka leiguverð og skapa aukið húsnæðisöryggi og stöðugleika á húsnæðimarkaði.
Samtals hafa verið teknar í notkun yfir 2.000 íbúðir víðs vegar um landið eins og sjá má að meðfylgjandi myndum.
Hvað eru stofnframlög?
Stofnframlög eru stuðningur í formi eiginfjár sem veitt eru annars vegar fyrir hönd ríkis í gegnum HMS og hins vegar frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem íbúðirnar koma til með að vera staðsettar í. Stofnframlög eru veitt til bæði kaupa og byggingar á íbúðarhúsnæði með það að markmiði að tryggja tekju- og eignalágum aðgengi að viðunandi leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði.
Stofnframlag ríkis er 18% og sveitarfélags 12%. Ríki er heimilt er að veita allt að 4% viðbótarframlag vegna íbúðarhúsnæðis á vegum sveitarfélaga, íbúðarhúsnæðis ætlað námsmönnum eða öryrkjum. Einnig er heimilt að veita sérstakt byggðaframlag vegna byggingar almennra íbúða á svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði og bygging í búða hefur verið í lágmarki.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS