6. mars 2020

Opið er fyrir umsóknir um stofnframlög

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Auglýst er eftir umsóknum fyrir árið 2020 um stofnframlög ríkisins til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum skv. lögum nr. 52/2016 og reglugerð nr. 183/2020.

Auglýst er eftir umsóknum fyrir árið 2020 um stofnframlög ríkisins til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum skv. lögum nr. 52/2016 og reglugerð nr. 183/2020.

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2020.

Markmið laga um almennar íbúðir er að bæta húsnæðisöryggi þeirra sem eru undir tekju- og eignamörkum við upphaf leigu. Stofnframlög eru veitt til byggingar og kaupa á almennum íbúðum.

Vakin er athygli á að reglugerð um stofnframlög ríkis og sveitafélaga hefur verið endurútgefin með breytingum og er nýja reglugerð að finna hér.Við mat á umsóknum er lögð sérstök áhersla á eftirfarandi þætti:

  • Nýbyggingar og fjölgun leiguíbúða.
  • Íbúðir á svæðum þar sem þörf er fyrir leiguíbúðir fyrir leigjendur undir tekju- og eignamörkum.

Auk þess verður lögð áhersla á:

  • Hagkvæmar íbúðir hvað stærð og herbergjafjölda varðar sbr. viðmiðunarstærðir.
  • Hagkvæmar aðferðir við íbúðabyggingar í því skyni að lækka byggingarkostnað.
  • Íbúðir sem uppfylla þarfir íbúa á hverju svæði.
  • Íbúðir sem uppfylla mismunandi þarfir ólíkra hópa.
  • Að stuðla að fjölbreyttri samsetningu íbúa og félagslegri blöndun.

Viðmiðunarstærðir

Við úthlutun verður horft til þess að íbúðir séu að jafnaði ekki stærri en eftirfarandi tafla segir til um:

Umsóknum skal skila inn á rafrænu formi á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2020. Til þess að hægt sé að meta umsókn þurfa öll gögn skv. 14. gr. reglugerðar nr. 555/2016 að skila sér innan umsóknarfrests.Smelltu hér til að opna umsókn um stofnframlög.

Smelltu hér til að lesa meira um stofnframlög.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS