29. júní 2021

Nýjasta spáin: Eldheitt sumar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Íslenska sumarið í öllu sínu veldi er dásamlegt. Fólk flykkist með brös á vör hringinn í kringum landið á ýmsum farartækjum og með mismunandi gististaði í huga. Ævintýrin eru mörg og á sama tíma þarf að huga að ýmsu, þar á meðal brunavörnum.

Íslenska sumarið í öllu sínu veldi er dásamlegt. Fólk flykkist með brös á vör hringinn í kringum landið á ýmsum farartækjum og með mismunandi gististaði í huga. Ævintýrin eru mörg og á sama tíma þarf að huga að ýmsu, þar á meðal brunavörnum.

Breyttur bíll – húsbíll – tjaldvagn – fellihýsi – hjólhýsi – sumarbústaður – hótel – tjald?

Eldhættan fer aldrei í frí og því nauðsynlegt að hafa brunavarnir í huga öllum stundum og bæta þeim við á tjékklistann áður en lagt er í hann.

 

Eldklár ferðaráð

Vissir þú að skylt er að hafa slökkvitæki í öllum breyttum bílum & húsbílum? Einnig er góður siður að hafa slökkvitæki í öllum bílum sem og ferðavögnum. Þar sem ferðalagið getur boðið upp á ýmis veður og hitabreytingar er nauðsynlegt að hlaða og yfirfara slökkvitækið árlega hið minnsta. Reykskynjarann þekkja flestir og finnst hann á bróðurparti heimila landsins. Hafið reykskynjara ávallt með í för ásamt gasskynjara sé ætlunin að nota gas á ferðalaginu.

 

Rjúkandi ráð fyrir bústaðinn

Ekki láta góma þig við að vita ekki þitt rjúkandi ráð! Enginn afsláttur er gefinn á brunavarnir bústaðanna en þar gilda sömu reglur og heima fyrir:

  • Slökkvitæki við útganga
  • Reykskynjarar í öllum rýmum þar sem raftæki eru til staðar & í öllum svefnherbergjum
  • Eldvarnateppi í eldhúsinu
  • Þekkið flóttaleiðir & gerið flóttaáætlanir
  • Verið á varðbergi gagnvart gróðureldum

 

Nokkrir kolamolar á grillið

  • Staðsetjið grillið ekki of nálægt mannvirkjum, skjólveggjum & gróðri
  • Yfirgefið ekki grillið á meðan það er í notkun
  • Nauðsynlegt er að prófa gaskútinn & ganga úr skugga að búnaðurinn sé þéttur og rækilega skorðaður
  • Ekki gleyma að hreinsa fitu og olíu af grillinu

 

Yfir hvað ertu að tjalda?

  • Forðist að nota gas til eldunar og upphitunar inni í tjöldum – slysin eru fljót að gerast og þá sérstaklega þegar eldmaturinn er mikill eins og í tjöldum
  • Ekki skríða ofan í svefnpokann þegar varðeldurinn logar enn – slökkvið heldur í honum með vatni eða sandi
  • Sama á við um einnota grill – gætið að í því sé slökkt
  • Kynnið ykkur reglur og flóttaleiðir tjaldsvæðisins
  • Farið almennt varlega með opinn eld í kringum tjöld og á tjaldsvæðinu
  • Munið eftir gróðureldahættunni

 

Vertu ELDKLÁR með okkur í sumar og bættu brunavörnum á tjékklistann!

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS