8. október 2026
9. október 2026
Ný brunavarnaáætlun Múlaþings tekur gildi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Ný brunavarnaáætlun Slökkviliðs Múlaþings hefur verið samþykkt og gildir í fimm ár
- Aldrei áður hefur verið brunavarnaáætlun í gildi á þessu svæði
- Nú eru 95% landsmanna með virka brunavarnaáætlun og hefur hlutfallið aldrei verið hærra
Í sumar var brunavarnaáætlun Múlaþings samþykkt af sveitarstjórn og HMS. Þetta var jafnframt í fyrsta skipti sem brunavarnaáætlun er samþykkt á starfssvæði Slökkviliðs Múlaþings. Brunavarnaáætlanir eru öflugt tæki til að skapa heildstæða yfirsýn yfir starfsemi og ástand slökkviliðs og hversu vel í stakk búið það er að takast á við hættur á sínu svæði í þeim tilgangi að vernda líf og eignir manna.
Haraldur Geir Eðvaldsson slökkviliðsstjóri sagði af þessu tilefni:
,,Það er mikið gleðiefni að brunavarnaáætlun fyrir starfsvæði Slökkviliðs Múlaþings skuli loksins hafa tekið gildi. Vinnan við áætlunina hefur tekið langan tíma og verið á köflum erfið og snúin. Það var mikið framfaraskref þegar HMS tók upp rafrænt umhverfi til að vinna áætlunina og samstarf við starfsmenn brunavarnasviðs HMS hefur verið mjög gott. Brunavarnaáætlun er mikilvægt gagn fyrir íbúa, slökkviliðið og þá sem stýra málaflokknum hjá sveitarfélögunum. Áætlunin lýsir stöðunni og gefur tækifæri til að horfa til úrbóta og jafnframt ýta upp því sem vel er gert og sinnt“.
95 prósent landsmanna með virka brunavarnaáætlun
Á þessu ári hafa einnig verið samþykktar brunavarnaáætlanir hjá Brunavörnum Suðurnesja og Brunavörnum Árnessýslu. Hlutfall slökkviliða landsins með virka brunavarnaáætlun er komið upp í 68 prósent og er markmiðið að 80 prósent slökkviliða séu með samþykkta brunavarnaáætlun fyrir árslok. Hlutfall landsmanna með virka brunavarnaáætlun er komið upp í 95 prósent og hefur aldrei verið hærra. Í byrjun árs 2026 voru um 90 prósent landsmanna með virka brunavarnaáætlun.
Að hafa samþykktar brunavarnaáætlanir er mikilvægt hagsmunamál fyrir íbúa landsins, þar sem þær lýsa viðbúnaði slökkviliða og eiga þar með að tryggja betra öryggi.
HMS óskar Slökkviliði Múlaþings og íbúum sveitarfélaganna innilega til hamingju með nýja brunavarnaáætlun.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




