27. mars 2024
13. júní 2022
Ný brunavarnaáætlun undirrituð
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Slökkvilið Grýtubakkahrepps 2022 - 2027
Föstudaginn 10. júní sl. var ný brunavarnaáætlun fyrir starfssvæði Slökkviliðs Grýtubakkahrepps samþykkt og undirrituð af forstjóra HMS, slökkviliðsstjóra Grýtubakkahreppar og sveitastjóra Grýtubakkahrepps.
Slökkvilið Grýtubakkahrepps 2022 - 2027
Föstudaginn 10. júní sl. var ný brunavarnaáætlun fyrir starfssvæði Slökkviliðs Grýtubakkahrepps samþykkt og undirrituð af forstjóra HMS, slökkviliðsstjóra Grýtubakkahreppar og sveitastjóra Grýtubakkahrepps.
Á síðustu mánuðum hefur HMS unnið markvisst að því að styðja slökkviliðin í landinu við gerð brunavarnaáætlana og er gaman að segja frá því að nú er rúmlega helmingur slökkviliða í landinu með gilda áætlun eða 18 af 32 slökkviliðum landsins.
Markmið brunavarnaáætlunar er að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þau verkefni sem því eru falin samkvæmt lögum.. Brunavarnaáætlun leggur grunninn að gæðastjórnun og úttekt á starfsemi slökkviliða fyrir þá aðila sem bera ábyrgð á brunavörnum í hverju sveitarfélagi. Áætlunin auðveldar einnig íbúum sveitarfélagsins að fá upplýsingar um veitta þjónustu, skipulag slökkviliðs og markmið með rekstri þess í sveitarfélaginu.
HMS óskar Slökkviliði Grýtubakkahrepps og íbúum sveitafélagsins til hamingju með áfangann.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS