23. október 2023

Niðurstöður nýjustu talningar HMS á íbúðum í byggingu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Nýjar tölur sýna að framkvæmdir eru hafnar við byggingu á 8.683 íbúðum.
  • Mikill samdráttur í fjölda nýrra framkvæmda. Samdráttur um 68% á milli ára.
  • Aukinn fjöldi íbúða í framkvæmdum þar sem framvinda stendur í stað á milli talninga og vísbendingar um að enn sé verið að hægja á framkvæmdum. HMS metur því að einungis 6.738 íbúðir séu í virkri framleiðslu.
  • Fjöldi fullbúinna íbúða sem ekki eru teknar í notkun eykst um nærri 600% á milli ára. Skýr merki um að erfiðara gangi að selja nýbyggingar.
  • Búast má við 2.838 fullbúnum íbúðum í ár og 2.624 íbúðum á næsta ári. Ný spá gerir ráð fyrir færri fullbúnum íbúðum en fyrri spár.

Samkvæmt nýjustu talningu HMS er uppbygging íbúða mest á höfuðborgarsvæðinu þar eru 69,2% af öllum íbúðum sem eru í byggingu. Flestar íbúðir eru í byggingu í Reykjavík (2.607 íbúðir) næstflestar eru í Hafnarfirði (1.605 íbúðir). Utan höfuðborgarsvæðisins eru flestar íbúðir í byggingu í sveitarfélaginu Árborg (586 íbúðir) og Reykjanesbæ (399 íbúðir). Samdráttur í fjölda í búða í byggingu er í flestum sveitarfélögum mestur í Mosfellsbæ (45,5%) og Kópavogi (7,4%). Fjölgun er í Reykjavík um 7,2%.

Enn eykst fjölda íbúða þar sem framvinda helst óbreytt á milli talninga. Mest er aukningin á framvindustigi 3 og 4. Ef framkvæmdir eru lengi á sama framvindustigi getur það verið vísbending um að hægt hafi verið á framkvæmdum og á það sérstaklega við um framvindustig 1 (jarðvinna hafin), framvindustig 2 (undirstöður tilbúnar) og framvindustig 4 (fokhelt mannvirki) þar sem yfirleitt má vænta þess að framvinda teljist á næsta framvindustigi á þeim 6 mánuðum sem að jafnaði eru á milli talninga HMS. Flestar íbúðirnar með óbreytta framvindu eru á höfuðborgarsvæðinu en á þó við á öllum landssvæðum.

Samkvæmt spá HMS sem byggir á talningunni þá má vænta þess að samdráttur verði í fjölda fullbúinna íbúða þriðja árið í röð og að það verði áframhaldandi samdráttur einnig á næsta ári. Nýja spáin gerir ráð fyrir að 2.838 íbúðir verði fullbúnar í ár og 2.624 íbúðir á næsta ári.

Sjá ítarlegri greiningu HMS á niðurstöðum talningarinnar í viðhengi hér að neðan með nánari tölum um framvindu og fjölgun íbúða.

Greining á niðustöðum septembertalningar 2023

Sjá ítarlegri greiningu HMS á niðurstöðum talningarinnar í viðhengi með nánari tölum um framvindu og fjölgun íbúða.

Greining á niðustöðum septembertalningar 2023

Sjá ítarlegri greiningu HMS á niðurstöðum talningarinnar í viðhengi með nánari tölum um framvindu og fjölgun íbúða.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS