8. maí 2025
15. febrúar 2024
Námskeið um notkun Mannvirkjaskrár HMS
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Iðan fræðslusetur hefur haldið námskeið um notkun Mannvirkjaskrár í janúar og febrúar í samstarfi við HMS. Námskeiðin hafa verið haldin í Reykjavík, Akureyri og Selfossi, meiningin er að halda fleiri námskeið vítt og breitt um landið ef næg þátttaka næst. Næstu námskeið eru fyrirhuguð á Egilsstöðum, Reyðarfirði og á Ísafirði síðar í mánuðinum.
Námskeiðin eru fyrir byggingarstjóra, en tilgangur þeirra er að fræða þátttakendur um Mannvirkjaskrá til að auðvelda þeim notkun á henni. Farið verður yfir uppbyggingu, virkni og helstu aðgerðir sem byggingarstjórar þurfa að framkvæma við áfangaúttektir.
- Námskeiðið á Egilsstöðum verður haldið á Hótel Valaskjálf þann 22. febrúar og stendur frá kl. 9 til 11. Hægt er að skrá sig með því að smella á þennan hlekk.
- Námskeiðið á Reyðarfirði verður haldið á Austurbrú, Búðareyri 1 þann 22. febrúar og stendur frá 13 til 15. Hægt er að skrá sig með því að smella á þennan hlekk.
- Námskeiðið á Ísafirði verður haldið á Suðurgötu 12 þann 29. Febrúar og stendur frá 13 til 15. Hægt er að skrá sig með því að smella á þennan hlekk.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS