19. október 2022

Mánaðarskýrsla hagdeildar HMS fyrir október 2022

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Verulega hefur dregið úr hlutfalli íbúða sem seljast yfir ásettu verði sem er tákn um minnkandi eftirspurnarþrýsting. Á höfuðborgarsvæðinu seldust 44% íbúða í fjölbýli yfir ásettu verði í ágúst samanborið við 53% í júlí og 42% sérbýla samanborið við 48% í júlí. Þegar mest var seldust 70% íbúða í fjölbýli og 60% sérbýla yfir ásettu verði.
  • Meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu jókst lítillega á milli mánaða en hann mældist að meðaltali 41,0 dagur í ágúst samanborið við 39,7 daga í júlí.
  • Meðalkaupverð á höfuðborgarsvæðinu í ágúst var 73,7 m.kr. og lækkar annan mánuðinn í röð en í júní var það 76,4 m.kr. Þar af seldust íbúðir í fjölbýli að jafnaði á 66 m.kr. en í sérbýli á 104,4 m.kr., sem er talsverð lækkun frá því í maí þegar meðalkaupverð þeirra var 116,1 m.kr.
  • Mánaðarleg greiðslubyrði óverðtryggðra lána er nú 62.300 kr. fyrir hverjar 10 m.kr. sem eru teknar að láni en var minnst 37.700 á fyrri hluta árs 2021.[1] Það gerir 65% hækkun á greiðslubyrði á einu og hálfu ári.
  • Líklega eru um 27% af útistandandi íbúðarlánum óverðtryggð á breytilegum vöxtum. Samanlögð greiðslubyrði lána á breytilegum óverðtryggðum gæti verið um 3,9 ma.kr. á mánuði en hefði verið 2,3 ma.kr. ef vextir væru enn í lágmarki.
  • Samkvæmt íbúðatalningu HMS og Samtaka iðnaðarins sem framkvæmd var í ágúst og september voru 8.113 íbúðir í byggingu á landinu öllu samanborið við 7.260 í talningunni í mars sl. og 6.001 íbúð í september í fyrra. Aukningin frá því á sama tíma í fyrra nemur því 35,2%. Mesta aukningin er í Kraganum, þ.e. á höfuðborgarsvæðinu fyrir utan Reykjavíkurborg, en þar hefur fjöldi íbúða í byggingu nær tvöfaldast frá því á sama tíma fyrir ári.
  • Ef aðeins er miðað við íbúðir sem nú þegar eru í byggingu má gera ráð fyrir að í ár og á næstu tveimur árum verði byggðar um 3.000-3.200 íbúðir á ári.

Frek­ari merki kóln­un­ar á fast­eigna­mark­aði

Fasteignamarkaðurinn heldur áfram að kólna og hefur viðsnúningurinn verið nokkuð hraður. Framboð íbúða eykst hratt, viðskiptum fer fækkandi og sömuleiðis hefur hlutfall íbúða sem selst yfir ásettu verði minnkað. Nokkuð ljóst er að það eigi eftir að draga verulega úr verðhækkunum sem hafa einkennt fasteignamarkaðinn á undanförnum árum en óvíst er hvort að fasteignaverð eigi eftir að lækka. Það veltur meðal annars á því að hve miklu leyti heimilin eru tilbúin til að fjármagna sig á verðtryggðum lánum.

Framboð íbúða til sölu heldur áfram að aukast hratt. Nú eru um 1.300 íbúðir til sölu á höfuðborgarsvæðinu samanborið við 1.049 íbúðir í byrjun september en lágmarkinu var náð í febrúar síðastliðnum þegar innan við 450 íbúðir voru til sölu. Framboðið hefur því nærri þrefaldast á ríflega átta mánuðum, en aðeins frá því í lok júlí nemur aukningin 89%. Í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins eru nú rétt tæplega 500 íbúðir til sölu og annars staðar á landsbyggðinni er þær 382.

Íbúðaverð hækkaði um 0,8% á milli mánaða í september á höfuðborgarsvæðinu eftir að hafa lækkað um 0,4% í ágúst miðað við vísitölu íbúðaverðs. Þriggja mánaða hækkun hennar mælist nú 1,5% en fyrir aðeins fáeinum mánuðum, nánar tiltekið í maí, mældist hún 9,1%. Sérstaklega hefur dregið úr verðhækkunum á íbúðum í fjölbýli en þær lækkuðu um 0,1% á milli mánaða í september eftir að hafa hækkað um 0,1% á milli mánaða í ágúst og mælist þriggja mánaða hækkun þeirra nú aðeins 0,5%. Mun meiri sveiflur eru á verði á sérbýli en þau hækkuðu að jafnaði um 4,8% á milli mánaða í september eftir að hafa lækkað um 2,4% mánuðinn þar á undan. Þriggja mánaða hækkun þeirra nemur 6,0%.

Íbúða­láns­vext­ir ekki hærri síð­an 2010

Stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentustig í byrjun október í 5,75% og hafa því nú verið hækkaðir samtals um 3 prósentustig frá því í byrjun maí. Bankarnir hafa brugðist við með því að hækka vexti á óverðtryggðum lánum um 0,1-0,25 prósentustig nú í október og 2,55-2,8 prósentustig frá því í maí. Nú eru lægstu óverðtryggðu vextir bankanna því núna á bilinu 7,25-7,59% og hafa ekki verið hærri frá árinu 2010.

Verðtryggð lán hafa verið að sækja í sig veðrið. Heildarupphæð hreinna nýrra verðtryggðra íbúðarlána voru jákvæð í ágúst sem þýðir að ný útlán voru meiri en uppgreiðslur og óreglulegar innáborganir. Það er í fyrsta sinn sem það gerist síðan í febrúar 2020.

Mánaðarskýrsluna í heild sinni má nálgast hér:

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS