8. maí 2025
16. júní 2021
Mánaðarskýrsla hagdeildar HMS fyrir júní 2021
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Enn eru mikil umsvif á fasteignamarkaði miðað við árstíma og ýmsir mælikvarðar gefa til kynna að eftirspurnarþrýstingur sé enn mikill.
- Enn eru mikil umsvif á fasteignamarkaði miðað við árstíma og ýmsir mælikvarðar gefa til kynna að eftirspurnarþrýstingur sé enn mikill.
- Á landinu öllu eru nú ríflega 1.900 íbúðir auglýstar til sölu en fyrir rúmu ári voru þær rétt tæplega 4.000.
- Ekki hefur hærra hlutfall íbúða á höfuðborgarsvæðinu selst yfir ásettu verði frá upphafi mælinga.
- Sölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu sem seldust í apríl var að jafnaði 39 dagar og hefur ekki mælst skemmri frá upphafi mælinga.
- Uppfærðar tölur fyrir marsmánuð sýna að fjöldi útgefinna kaupsamninga bætti fyrra met um 15%.
- Þinglýstir leigusamningar á höfuðborgarsvæðinu í apríl voru áfram margir miðað við árstíma eða 426.
- Leiguverð hefur farið lækkandi undanfarið á höfuðborgarsvæðinu og mælist 12 mánaða breyting vísitölu leiguverðs neikvæð um 2,4% fyrir aprílmánuð en þetta er áttundi mánuðurinn í röð þar sem 12 mánaða breyting leiguverðs mælist neikvæð.
- Bankarnir halda áfram að sækja á lánamarkaði. Þeir eru nú með um 67% af öllum útistandandi lánum en í lok apríl í fyrra var hlutdeild bankanna af heildar húsnæðislánum í landinu um 55%.
- Vinsældir óverðtryggðra lána eru áfram miklar. Hlutdeild óverðtryggðra lána var komin upp í 46% í lok apríl og hækkaði um rúmlega eitt og hálft prósentustig á milli mánaða
- Nýliðun fyrirtækja í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð er með mesta móti frá upphafi mælinga árið 2008 ef miðað er við árstíðaleiðrétt sex mánaða meðaltal.
- Fleiri kranar hafa verið skoðaðir á fyrstu fimm mánuðum ársins á þessu ári en á nokkru öðru ári fyrir utan 2007 og 2008. Kranar í notkun er algengur mælikvarða til að mæla umsvif í nýbyggingum.
Sérbýli í miðbæ Reykjavíkur hefur hækkað um 36% á milli ára
Undanfarið ár hefur mikil eftirspurn leitt til þess að íbúðum til sölu hefur fækkað. Nýtt framboð fasteigna hefur ekki mætt þessari miklu eftirspurn. Verðhækkanir voru hóflegar framan af árinu miðað við markaðsaðstæður. Síðustu tvo mánuði hefur framboð aukist og eignum til sölu á höfuðborgarsvæðinu er nú hætt að fækka en verð hefur á sama tíma hækkað talsvert. Á landinu öllu eru nú ríflega 1.900 íbúðir auglýstar til sölu en fyrir rúmu ári voru þær rétt tæplega 4.000. Á höfuðborgarsvæðinu eru um 930 íbúðir til sölu en þær urðu fæstar um 830 í fyrri hluta apríl.
Íbúðarverð hefur heldur betur tekið kipp upp á við á höfuðborgarsvæðinu á árinu þar sem íbúðaverð var um 2% hærra í apríl en það var í mars og 3,7% hærra en í febrúar sé miðað við vísitölu söluverðs.
Á síðustu 12 mánuðum hefur íbúðaverð alls hækkað um 11,6% á svæðinu. Sérbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði nærri tvöfalt meira í verði á milli mánaða en íbúðir í fjölbýli eða um ríflega 3,5% á móti 1,6% og á síðustu tólf mánuðum hefur það hækkað um 17,4% á móti 10,2% fyrir fjölbýli. Mest hefur sérbýli í miðbænum hækkað eða um 36% á milli ára og í Grafarholti þar sem það hefur hækkað um 34% en einnig hefur verð hækkað mikið í Hafnafirði og Álftanesi.
Óverðtryggðir vextir teknir að hækka
Bankarnir eru farnir að hækka óverðtryggða vexti á íbúðalánum í kjölfar þess að Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í maí. Munurinn á föstum og breytilegum vöxtum á óverðtryggðum lánum hefur farið vaxandi og er nú að jafnaði um eitt prósentustig en var um hálft prósentustig í fyrra vor. Aukið álag við að festa vexti í 3-5 ár gefur til kynna að væntingar um vaxtahækkanir á þeim tíma fari vaxandi.
Hlutdeild óverðtryggðra lána hefur vaxið hratt undanfarið ár eftir því sem vextir á íbúðalánum hafa lækkað. Hlutdeild óverðtryggðra lána var komin upp í 46% í lok apríl og hækkaði um rúmlega eitt og hálft prósentustig á milli mánaða. Ekki þarf að leita lengra aftur en til byrjunar árs 2019 þar sem hlutdeildin var helmingi minni eða um 23%. Mögulega mun hægja á því að fólk endurfjármagni með óverðtryggðum lánum eftir því sem vextir hækka.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS