16. maí 2025
13. desember 2021
Mánaðarskýrsla hagdeildar HMS fyrir desember 2021
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Í október seldust 37,8% íbúða í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu yfir ásettu verði og hefur hlutfallið aldrei mælst jafn hátt áður.
- Í október seldust 37,8% íbúða í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu yfir ásettu verði og hefur hlutfallið aldrei mælst jafn hátt áður.
- Meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu var tæplega 37 dagar á íbúðum sem seldust í október og hefur sölutíminn aldrei mælst styttri.
- Á höfuðborgarsvæðinu var greidd leiga að meðaltali 193 þ.kr í október, 163 þ.kr. í nágrenni þess og 151 þ.kr. á landsbyggðinni. 12 mánaða breyting á vísitölu leiguverðs á föstu verðlagi lækkaði eða stóð í stað í áðurnefndum landshlutum. Þetta bendir til þess að almennt verðlag hafi hækkað meira en leiguverð.
- Stýrivextir hækkuðu um miðbik nóvember um hálft prósentustig. Hækkunin kom fram í hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum en ekki verðtryggðum. Þrátt fyrir hækkanir er vaxtastig enn lágt í sögulegu samhengi.
- Heildarútlán til heimilanna á föstu verðlagi jukust í október frá fyrri mánuði en það hefur hægt á aukningunni síðustu mánuði. Hrein ný íbúðalán fjármálastofnanna á verðlagi dagsins í dag drógust saman á milli mánaða.
- Mánaðarleg velta í byggingariðnaði hefur farið vaxandi frá miðju síðasta ári en hún var 7,8% meiri í júlí-ágúst sl. en á sama tíma í fyrra.
Lítið framboð íbúða til sölu dregur úr umsvifum á íbúðamarkaðiEftirspurn eftir íbúðarhúsnæði er enn með mesta móti. Íbúðum til sölu heldur áfram að fækka, sölutími íbúða er stuttur og hátt hlutfall íbúða selst yfir ásettu verði. Umsvif hafa hins vegar verið að dragast saman en það má einkum rekja til þess að lítið framboð er af íbúðum til sölu. Á höfuðborgarsvæðinu eru nú 626 íbúðir til sölu en þær voru 664 í byrjun nóvember sem gerir nærri 6% samdrátt. Í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins og annarsstaðar á landsbyggðinni hefur framboð íbúða dregist saman um ríflega 12% á sama tíma. Samtals hefur framboð íbúða minnkað um 68% frá því í maí 2020.
Á höfuðborgarsvæðinu virðist vera mikið bitist um litlar og ódýrar eignir. Nú eru um 17,5% allra íbúða til sölu minni íbúðir, þ.e. 0-2 herbergja, en hlutfallið var nærri 29% í lok janúar. Þá eru minni íbúðir að seljast í meira mæli yfir ásettu verði en hlutfallið var ríflega 40% í október. Þá seldust 8,7% allra íbúða og nærri 11% minni íbúða á yfir 5% meira en ásett verð sem er mun meira en hefur áður tíðkast.
Óverðtryggðir vextir hækka en verðtryggðir lækka
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um hálft prósentustig um miðbik nóvember mánaðar. Vaxtahækkunin varð til þess að vextir á bæði föstum og breytilegum óverðtryggðum vöxtum hækkuðu. Hækkunin var meiri hjá bönkunum í desember en miðgildi breytilegra óverðtryggðra vaxta hjá bönkunum hækkaði um 0,35 prósentustig á meðan það hækkaði um 0,25 prósentustig hjá lífeyrissjóðunum. Hliðstæð hækkun fastra óverðtryggðra vaxta var 0,21 prósentustig hjá bönkunum og 0,1 prósentustig hjá lífeyrissjóðunum. Verðtryggðir vextir lækkuðu hins vegar eða stóðu í stað í desember. Vaxandi munur á verðtryggðum og óverðtryggðum vöxtum gæti leitt til þess að það dragi úr ásókn í óverðtryggð lán á næstu misserum.
Nýjustu tölur um heildarútlán til heimilanna á föstu verðlagi ná til loka október en þá mældist 0,66% aukning frá fyrri mánuði en það hefur hægst á vexti heildarútlána undangengna mánuði. Hrein ný íbúðalán fjármálastofnanna á verðlagi dagsins í dag drógust saman í október og voru 48,4% minni en þau voru á sama tíma í fyrra.
Mánaðarskýrsluna í heild sinni má nálgast hérhér:
Nánari upplýsingar veitir Kári S Friðriksson, hagfræðingur HMS, í síma 693-5934
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS