24. febrúar 2026
25. febrúar 2026
Lögbýlaskrá fyrir árið 2025 er komin út
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Alls voru 6.808 lögbýli skráð á Íslandi um síðustu áramót
- Nýjar lögbýlisskráningar voru 9 á síðasta ári
- Flest lögbýli eru skráð í sveitarfélaginu Skagafirði
Lögbýlaskrá fyrir árið 2025 er komin út, en samkvæmt henni eru 6.808 lögbýli á Íslandi og yfir árið voru gerðar alls 9 breytingar á árinu 2025, þar sem 9 ný lögbýli voru skráð en ekkert lögbýli var afskráð. Hægt er að nálgast skrána í PDF-formi með því að smella á hnappinn hér að neðan, en hægt er að smella á þennan hlekk til að nálgast lögbýlaskrá í csv-formi.
Lögbýlaskrá fyrir 2025 má nálgast hér
Lögbýlaskrá er gefin út árlega fyrir allt landið á grundvelli upplýsinga úr þinglýsingabók og fasteignaskrá. Útgáfan er á vegum Matvælaráðuneytisins en samkvæmt 2. mgr. 26. gr. jarðalaga nr. 81/2004 er ráðuneytinu heimilt að fela öðrum aðila að annast gerð lögbýlaskrárinnar.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun annast útgáfu lögbýlaskrár þar sem haldið er utan um skrána í réttindahluta fasteignaskrár sem stofnunin meðal annars rekur.
Hvað er lögbýli?
Samkvæmt jarðalögum teljast þau lögbýli sem hafa fengið útgefið sérstakt leyfi frá ráðherra um lögbýlisrétt og skal því leyfi þinglýst. Við þinglýsinguna fær viðkomandi eign sérstaka merkingu í þinglýsingarhluta fasteignaskrár og birtist í næstu lögbýlaskrá sem gefin verður út.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




