28. maí 2028
28. maí 2025
Leiðbeiningar um raflagnir á tjaldsvæðum, hjólhýsasvæðum og þess háttar stöðum
Í upphafi ferðasumarsins vill HMS benda á að á tjaldsvæðum, hjólhýsasvæðum og þess háttar stöðum þarf sérstaklega að huga að öryggi fólks vegna beinnar snertingar við jörð, mögulegra skemmda á lögnum vegna tjaldhæla eða jarðfestinga og umferðar þungra farartækja. Eins geta ytri aðstæður á tjaldsvæðum verið erfiðar rafbúnaði sökum veðurs, vinda og umgengni. Það er því afar mikilvægt að notaður sé rafbúnaður sem hæfir aðstæðum og uppsetning og frágangur sé með fullnægjandi hætti. Skoða þarf reglulega ástand og virkni búnaðarins til að tryggja öryggi þeirra sem tjaldsvæðin nota.
Varbúnaður sem ætlað er að tryggja öryggi, ekki síst bilunarstraumsrofar, eiga til að stirðna ef þeim er ekki haldið í „æfingu“ eða ytri áhrif erfið, afar mikilvægt er að ganga reglulega úr skugga um að hann starfi með réttum hætti. Eins er mikilvægt að ganga úr skugga um að að annar búnaður, s.s. tenglar og umlykjur, sé óskemmdur og verndarstig sé fullnægjandi með tilliti til ytri áhrifa, sé svo ekki getur það haft í för með sér hættu á raflosti.
Í ljósi aukins fjölda rafbíla getur verið freistandi að stinga í samband við næsta tengil. HMS bendir á að aldrei ætti að nota tengla við hleðslu rafbíla nema þeir séu sérstaklega ætlaðir til slíks, sjá nánar í leiðbeiningum HMS um rafbíla.
HMS hefur gefið út leiðbeiningar um raflagnir á tjaldsvæðum, hjólhýsasvæðum og þess háttar stöðum, verklýsingu VL 3.039. Í leiðbeiningunum er meðal annars farið yfir kröfur reglugerðar um raforkuvirki (rur) og ÍST HD 60364 staðlaraðarinnar sem lúta að raflögnum á þessum stöðum og helstu atriði sem hafa ber í huga.