19. maí 2025
10. apríl 2022
Könnun á stöðu brunavarna á heimilum
Nýlega framkvæmdi Brunavarnasvið HMS könnun á stöðu brunavarna á heimilum fólks.
Niðurstaða skoðanakönnunar HMS
Nýlega framkvæmdi Brunavarnasvið HMS *könnun á stöðu brunavarna á heimilum fólks. Könnunin var gerð af Maskínu og var spurt um brunavarnir á heimilum, flóttaleiðir og annað sem snýr að brunavörnum heimilisins. Markmið könnunar var að ná fram upplýsingum um stöðu brunavarna á heimilum fólks í landinu. Í ljós kom að 98% svarenda eru með reykskynjara, 86% með slökkvitæki, og 75% með eldvarnarteppi. Þá eru 54% með þrennar brunavarnir á heimilinu, 29% tvennar brunavarnir, 12% eina brunavörn.
Niðurstöðurnar gefa til kynna að brunavarnir eru góðar á mörgum heimilium sem er ánægjulegt að sjá. Það er jákvætt að fólk hugar að ástandi brunavarna heima fyrir og sé meðvitað um flóttaleiðirog aðgengi að slökkvitækjum, eins og neðan greindar niðurstöður gefa til kynna.
Dagur reykskynjarans, 1. desember, sem er átak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og HMS er virkur þátttakandi að, hefur verið árangursríkt í gegnum árin og kemur það skýrt fram í könnuninni að reykskynjarar eru algengasta eldvarnartæki heimilisins.
Hluti af hinu árlega átaki árið 2021 var viðtal við Sólrúnu Öldu Waldorff sem brenndist illa í eldsvoða sem varð í Mávahlíð haustið 2019. Viðtalið fékk gríðarleg viðbrögð og vakti almenning til umhugsunar um eigin brunavarnir. Helmingur þeirra sem sáu átakið skoðuðu brunavarnir heimilisins í kjölfarið.
En það er ekki nóg að hafa eldvarnartækin á heimilinu þau þurfa líka að virka, vera sýnileg og við þurfum að kunna að nota þau tæki sem eru til staðar. Mikilvægt er að setja upp flóttaáætlun og skipuleggja flóttaleiðri á heimilinu, ræða málin með öllum íbúum heimilisins um það hvernig við bregðumst við bruna.
Það er áhugavert að rýna niðurstöður könnunarinnar og afar ánægjulegt að sjá að mikil vitundarvakning hefur átt sér stað um brunavarnir heimilanna en betur má ef duga skal. Við viljum að brunavarnir séu í góðu lagi á öllum heimilum. Það er ábyrgð okkar allra að vera vakandi fyrir nánasta umhverfi og efla öryggi allra landsmanna.
Vinnum saman að því að efla eigið eldvarnareftirlit. Vertu eldklár!
www.vertueldklar.is hér má nálgast áhugavert efni.
*Könnunin var unnin af Maskínu, úrtakið 1.044 einstaklingar úr þjóðskrá 18 ára og eldri, alls staðar af landinun sem endurspeglar þjóðina því prýðilega.