17. febrúar 2021

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að hækka

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Vísitala söluverðs á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt þjóðskrá hækkaði um 0,1% milli mánaða og er 6 mánaða hækkunin 4,3% og 12 mánaða hækkunin 7,3%. Söluverð hefur hækkað nokkuð skarpt frá því í apríl en mikið líf færðist í fasteignamarkaðinn í vor í kjölfarið á fyrra samkomubanni vegna kórónaveiru. Síðan þá hefur fasteignaverð hækkað töluvert eða um 6,6%. Mesta hækkunin á höfuðborgarsvæðinu hefur verið á sérbýli eða 7,8% á meðan fjölbýli hefur hækkað um 6,8%.

Frá því í maí 2017 hefur hækkun rauníbúðaverðs verið nokkuð hófleg eða um 7,7% á tæplega fjórum árum sem gerir um 2,0% á ári að jafnaði. Nú er íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu um 8,8% hærra en þegar það náði hámarki á haustmánuðum 2007, en verð á sérbýli er rétt undir því sem það var þá.