11. desember 2018

Húsnæðismarkaðurinn - Mánaðarskýrsla desember 2018

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Minni og dýrari nýbyggingarVísitala ásetts verðs íbúða á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 7,2% undanfarið ár á sama tíma og vísitala íbúðaverðs hefur hækkað um 4,1%.  Ásett fermetraverð nýbygginga á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað áberandi mikið frá því í október í fyrra eða um 17%. Nýjar íbúðir sem settar eru á sölu eru minni nú en áður sem getur skýrt það  að hluta hvers vegna fermetraverð í nýbyggingum hefur hækkað svona hratt. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu ÍbúðalánasjóðsEkki útlit fyrir að hlutfallsleg stærð leigumarkaðar breytist í bráð Samkvæmt nýjustu könnun Íbúðalánasjóðs telja hlutfallslega jafn margir landsmenn að þeir verði á leigumarkaði eftir hálft ár og voru þar í september eða 17% einstaklinga 18 ára og eldri. Flestir leigjendur, eða 86%, myndu þó fremur velja að búa í eigin húsnæði en vera á leigumarkaði ef nægjanlegt framboð væri af hvoru tveggja. Aukning í óverðtryggðum íbúðalánumNýjustu tölur yfir ný íbúðalán heimilanna sýna mikla aukningu í óverðtryggðum lánum á nýliðnum haustmánuðum. Í októbermánuði námu ný íbúðalán, að frádregnum umfram- og uppgreiðslum eldri lána, alls um 14,3 milljörðum króna en þar af voru óverðtryggð lán að fjárhæð 13,4 milljörðum króna. Óverðtryggð lán voru því um 94% af hreinum nýjum íbúðalánum fjármálastofnana til heimilanna í október.Húsnæðismarkaðurinn - mánaðarskýrsla desember 2018