22. maí 2026
21. apríl 2026
Þétting byggðar mætir mestri andstöðu meðal eldra fólks í úthverfum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Öryggi, gott samfélag og vinaleg samskipti skiptir fólk á öllum aldri miklu máli við val á nærumhverfi
- Andstaða við þéttingu eykst með aldri og er meiri í úthverfum höfuðborgarsvæðisins en í þéttari hverfum
- Búsetuóskir heimila eru fjölbreyttari en sú íbúðauppbygging sem nú er mest áberandi á höfuðborgarsvæðinu
Viðhorf til húsnæðis og nærumhverfis ráðast að hluta af æviskeiði fólks, þar sem eldra fólk leggur áherslu á að komast sínar ferðir á einkabíl á meðan yngra fólk vill vera nálægt vinnu. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun HMS um skipulagsóskir, en niðurstöður úr henni voru birtar og kynntar á húsnæðisdeginum sem fór fram 22. apríl.
Hægt er að nálgast niðurstöður könnunarinnar með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Skipulags- og búsetuóskir Íslendinga
Afstaða til þéttingar ólík eftir aldri og búsetu
Yngra fólk, einkum á barneignaaldri, leggur meiri áherslu á nálægð við skóla, leikskóla, vinnu og þjónustu. Eldri svarendur horfa hins vegar frekar til gæða nærumhverfis, góðs aðgengis, loftgæða og nálægðar við náttúru.
Könnunin sýnir jafnframt skýran mun á afstöðu fólks til þéttingar byggðar. Andstaða við þéttingu eykst með hækkandi aldri og er meiri í úthverfum Reykjavíkur og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Á sama tíma reynast yngri svarendur og íbúar í þéttari og grónari hverfum almennt jákvæðari gagnvart frekari þéttingu.
Er uppbygging í takt við búsetuóskir landsmanna?
Niðurstöðurnar benda einnig til þess að búsetuóskir á höfuðborgarsvæðinu séu fjölbreyttar. Yngstu svarendur sjá frekar fyrir sér að búa í fjölbýli, sérbýli vegur þyngra hjá fólki á miðjum aldri en meðal elstu svarenda eykst vægi fjölbýlis aftur. Þegar nánar er litið á valkosti innan fjölbýlis kemur fram að margir horfa til smærri og meðalstórra fjölbýla, ekki eingöngu þeirra stærstu.
Þetta er áhugavert í ljósi marstalningar HMS á íbúðum í byggingu, sem sýnir að meirihluti íbúða á höfuðborgarsvæðinu er nú í stórum fjölbýlishúsum. Samanburðurinn gefur því tilefni til að huga að því hvort samsetning nýrrar uppbyggingar endurspegli nægilega vel fjölbreyttar búsetuóskir heimila.
Hér að neðan er upptaka af Húsnæðisdeginum 22. apríl þar sem meðal annars var farið yfir helstu niðurstöður könnunarinnar. Umfjöllunin um könnunina hefst eftir 1 klukkutíma og 40 mínútur.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





