22. maí 2025
15. febrúar 2022
HMS tekur þátt í alþjóðlegri könnun OECD
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) í samstarfi við Efnahags- og framfarastofnun, OECD, tók þátt í viðamikilli alþjóðlegri könnun á vöruöryggi í vefverslunum. Er verið að endurtaka könnun sem gerð var árið 2015 þar sem skoðað var hvort það væru til sölu hættulegar vörur sem væri búið að innkalla og hvort kaupendur fengu nægilegar upplýsingar um vöruna. Einnig hvort það kæmu fram viðeigandi viðvaranir og merkingar og hvort að til sölu væru vörur sem uppfylltu ekki lágmarksöryggi.

Hlutverk HMS í könnun OECD var að athuga hvort það kæmu fram viðvaranir og merkingar á leikföngum. Var ákveðið að skoða viðvaranir og merkingar á blöðrum þar sem þær valda fleiri dauðsföllum af völdum köfnunar en nokkuð annað leikfang. Einnig var ákveðið að skoða grímubúninga en flestir þeirra eru gerðir úr mjög eldfimum efnum, ef svo er þá verður það að koma fram.
HMS skoðaði yfir 125 vörur hjá 41 vefverslun og kom í ljós að enginn vefverslun var í lagi og aðeins sjö vörur voru með merkingar í lagi.
Verslanirnar eru byrjaðar að bæta við merkingum og eru sumar þegar búnar að setja allar þær merkingar sem eru á vörunni inn á sölusíðuna. Kaupendur ættu að geta fengið sömu upplýsingar um vöruna á sölusíðum eins og þeir fengu með því að skoða hana í verslunum. Þeir eiga að geta skoðað viðvaranir og leiðbeiningar, hvernig á að nota vöruna á öruggan hátt og hvort það séu einhverjar aldurstakmarkanir.
Samantekt á niðurstöðum OECD er væntanleg um hve stórt hlutfall hættulegra vara séu til sölu á vefverslunum. En fyrri könnun OECD sýndi að af 693 vörum sem voru skoðaðar sem höfðu verið innkallaðar eða sölubann sett á voru enn til sölu 471 hættulegar vörur eða 68%.
Markaðseftirlit HMS kannar reglulega íslenskar vefverslanir hvort að þar séu til sölu hættulegar vörur sem hafa verið innkallaðar eða sett sölubönn á. Í hverri viku eru tilkynntar um 15-25 vörutegundir í upplýsingarkerfi stjórnvalda í EES-ríkjunum um hættulegar vörur, https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport.