14. febrúar 2024

HMS og Mýrdalshreppur stefna að aukinni húsnæðisuppbyggingu  í Vík

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS hefur undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu allt að 20 íbúða í Vík í Mýrdal þar sem stór hluti íbúðanna verður í eigu Brákar íbúðafélags
  • Verkefnið er dæmi um útfærslu á framboðshvetjandi aðgerðum á íbúðamarkaði fyrir tilstilli stofnframlaga
  • Stefnt er að íbúðirnar verði tilbúnar á miðju næsta ári, en þær munu jafngilda nærri sjö prósenta vexti í íbúðafjölda í sveitarfélaginu

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), Mýrdalshreppur og byggingarfyrirtækið SV3 ehf. undirrituðu sameiginlega viljayfirlýsingu um aukna uppbyggingu allt að 20 íbúða í Vík í Mýrdal þar sem stór hluti íbúðanna verður í eigu Brákar íbúðafélags.

Verkefnið felst í byggingu 16 til 20 íbúða fjölbýlishúss. Brák mun svo kaupa 10-12 íbúðir og verða kaupin fjármögnuð með stofnframlögum frá ríki og sveitarfélagi. Vonast er til þess að framkvæmdir geti hafist á íbúðunum á þessu ári og að þeim verði lokið um mitt ár 2025.

Fram­boðs­hvetj­andi að­gerð

Fyrirhuguð uppbygging íbúðanna er dæmi um samstarfsverkefni með útfærslu á framboðshvetjandi aðgerðum á íbúðamarkaði þar sem ríki og sveitarfélög fjármagna hluta íbúðanna með stofnframlögum. Með slíkum framlögum getur hið opinbera tryggt aukið framboð á leiguíbúðum í eigu óhagnaðardrifinna leigufélaga.

Stofnframlögin stuðla einnig að auknu framboði annarra íbúða, þar sem framlögin draga úr óvissu um arðsemi stórra byggingarframkvæmda. Í Vík verða þannig 6 til 10 íbúðir byggðar til viðbótar þeim íbúðum sem fjármagnaðar eru með húsnæðisstuðningi hins opinbera sem fara á sölu á fasteignamarkað fyrir tilstilli stofnframlaganna.

Jafn­gild­ir nærri 7 pró­senta íbúða­fjölg­un

Viljayfirlýsingin er undirrituð á grundvelli samnings sem Mýrdalshreppur og innviðaráðuneytið undirrituðu í nóvember um íbúðauppbyggingu til næstu 10 ára. Samkvæmt samningnum verða sköpuð skilyrði í Vík fyrir uppbyggingu 20 íbúða á ári á næstu fimm árum, en það er nærri 7 prósenta árlegur vöxtur miðað við núverandi stærð sveitarfélagsins.

Mýrdalshreppur var annað sveitarfélagið á landinu til að undirrita samkomulag um aukna íbúðauppbyggingu og jafnframt fyrsta sveitarfélagið til að staðfesta í ár árlega endurskoðun á eigin húsnæðisáætlun. Nýjasta húsnæðisáætlun Mýrdalshrepps stefnir að framboði nýrra byggingarhæfra lóða fyrir 20-30 íbúðir á hverju ári.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS