17. júlí 2026
17. júlí 2026
HMS endurreiknar húsnæðisbætur í dag
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Endurreikningur húsnæðisbóta byggir á nýjustu tekju- og eignaupplýsingum frá Skattinum
- Húsnæðisbætur eru endurreiknaðar fjórum sinnum á ári samkvæmt lögum
- Umsækjendur fá bréf á island.is á næstu dögum ef breyting verður á bótafjárhæð
HMS framkvæmir endurreikning á öllum virkum umsóknum um húsnæðisbætur í dag, þann 17. júlí. Endurreikningurinn byggir á nýjustu tekju- og eignaupplýsingum frá Skattinum og er liður í reglubundnu eftirliti með húsnæðisbótum.
Við endurreikning húsnæðisbóta er gerð ný tekjuáætlun á grundvelli fyrirliggjandi gagna, þar á meðal upplýsinga úr staðgreiðsluskrá Skattsins, eignaupplýsinga og annarra forsenda sem geta haft áhrif á rétt til húsnæðisbóta.
Samkvæmt lögum um húsnæðisbætur ber HMS að framkvæma endurreikning húsnæðisbóta fjórum sinnum á ári. Markmið endurreikningsins er að tryggja að bótafjárhæð taki mið af réttum og uppfærðum upplýsingum um tekjur, eignir og aðrar forsendur umsækjenda.
Umsækjendur sem verða fyrir breytingu á bótafjárhæð í kjölfar endurreikningsins munu fá sent bréf með niðurstöðu nýrrar tekjuáætlunar á island.is á næstu dögum. HMS hvetur umsækjendur til að kynna sér niðurstöður endurreikningsins þegar bréfið hefur borist.
Ef spurningar eða athugasemdir vakna vegna nýrrar tekjuáætlunar er hægt að hafa samband með tölvupósti á hms@hms.is eða í síma 440 6400.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




