22. maí 2025
3. maí 2024
Grindvíkingar greiða að jafnaði hærri leigu en aðrir á leigumarkaði
Leigjendur sem þegið hafa sértækan húsnæðisstuðning vegna atburðanna í Grindavík greiða að meðaltali 13 til 22 þúsund krónum hærri leigu í hverjum mánuði en aðrir leigjendur í sambærilegu húsnæði. Þetta kemur fram í upplýsingum úr Leiguskrá HMS.
Í kjölfar atburðarásar í Grindavík á síðasta ári hefur HMS úthlutað sértækan húsnæðisstuðning til Grindvíkinga til að verða sér úti um leiguhúsnæði. Styrkurinn fer eftir fjölda heimilismanna og getur numið allt að 352 þúsund krónum á mánuði.
Um 880 heimili hafa fengið húsnæðisstyrkinn frá nóvember á síðasta ári, en þar af eru um 520 þeirra í leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Þar að auki eru um 270 heimili í leiguíbúðum á Suðurnesjum og 90 heimili í leiguíbúðum annars staðar á landinu.
Í desember síðastliðnum opnuðu stjórnvöld Leigutorg fyrir íbúa Grindavíkur sem átti að hjálpa þeim að finna tímabundið leiguhúsnæði. Frá opnun hafa rúmlega 200 leigusamningar verið gerðir í gegnum Leigutorg, en það samsvarar einungis um 22 prósentum af heildarfjölda leigusamninga til Grindvíkinga.
Á myndinni hér að neðan má sjá meðalleiguverð Grindvíkinga og almenns leigumarkaðar eftir algengustu svæðunum. Myndin sýnir að leiguverð Grindvíkinga á ákveðnum svæðum er að meðaltali 20 prósent hærra en á almennum leigumarkaði. Mestur er munurinn á Suðurlandi, þar sem Grindvíkingar borga að meðaltali 32 prósent hærri leigu, og í Hafnarfirði og Garðabæ, þar sem munurinn nam 28 prósentum.
Meðalleiguverð eftir algengustu leigusvæðum Grindvíkinga
Á myndinni hér að neðan má sjá meðalleiguverð allra leigusamninga eftir fjölda herbergja í íbúð. Myndin sýnir að Grindvíkingar greiða hærri leigu í öllum stærðarflokkum húsnæðis, en munurinn á milli Grindvíkinga og annarra leigjenda í Leiguskrá er að meðaltali 7 til 12 prósent. Því greiða Grindvíkingar að meðaltali hærri leigu en aðrir leigjendur fyrir sambærilegar íbúðir.
Meðalleiguverð eftir fjölda herbergja í íbúð
Munurinn í greiddri leigu er nokkuð jafn á milli stærðarflokka, en hann nemur að meðaltali 13 til 22 þúsund krónum. Mestur er hann hjá tveggja herbergja íbúðum, en minnstur hjá fjögurra herbergja íbúðum.